Fara í efni
Sverrir Páll

Götulokanir vegna hátíðar og hlaups

Kortið sýnir götulokanir í miðbæ Akureyrar um verslunarmannahelgina.

Í tengslum við fjölskylduhátíðna Eina með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina og fjallahlaupið Súlur Vertical verður nokkuð um götulokanir í miðbænum og víðar. Jafnframt verður hámarkshraði í Glerárgötu meðfram Akureyarvelli lækkaður í 30 km/klst. þegar mest er um að vera þar á sunnudeginum.

Eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni verður eftirtöldum götum lokað á mismunandi tímum.

  • Frá kl. 12 föstudaginn 31. júlí til kl. 8 að morgni mánudaginn 3. ágúst (rautt).
    • Hafnarstræti frá Kaupvangsstræti að Ráðhústorgi (göngugatan)
    • Ráðhústorg
    • Skipagata milli Hofsbótar og Strandgötu
    • Strandgata milli Ráðhústorgs og Geislagötu
    • Túngata milli Bankastígs og Strandgötu
  • Frá kl. 9 að morgni laugardagsins 1. júlí til kl. 9 að morgni sunnudagsins 2. ágúst (grænt).
    • Kaupvangsstræti frá Eyrarlandsvegi að Hafnarstærti (Gilið).
  • Frá kl. 12 föstudaginn 31. júlí til kl. 8 að morgni mánudagsins 3. ágúst, lokað fyrir allri umferð að undanskildum íbúm þessara gatna (blátt).
    • Smáragata, Hólabraut, Laxagata

Fjallahlaupið Súlur fer fram laugardaginn 1. ágúst og verða bæði götulokanir og umferðarstýring í tengslum við hlaupaleiðina, eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

  • Brekkugata og Klettastígur verða lokuð laugardaginn 1. ágúst á tímabilinu kl. 11-18.
  • Gatnamót Dalsbrautar og Borgarbrautar lokuð. Leið 1 hjá SVA ekur niður Þórunnarstræti.
  • Umferðarstýring verður vegna þátttakenda í hlaupinu á nokkrum stöðum.
    • Við hringtorgið á mótum Hlíðarfjallsvegar og Hlíðarbrautar
    • Í hluta Klettaborgar, frá göngustíg að Byggðavegi
    • Á gatnamótum Klettaborgar og Byggðavegar
    • Á Þórunnarstræti, gangbraut ofan við lögreglustöðina
    • Á gatnamótum Brekkugötu og Oddeyrargötu

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00