Fara í efni
Sverrir Páll

100 ára Landhelgisgæsla í öndvegi á Flugdeginum

Mynd: Hörður Geirsson
Aldarafmæli Landhelgisgæslu Íslands er fagnað á þessu ári og í tilefni þeirra tímamóta verður Gæslan í öndvegi á árlegum Flugdegi Flugsafns Íslands sem haldinn er í dag.
 
Safnið er á Akureyrarflugvelli eins og flestum er vonandi kunnugt. Svæðið verður opnað klukkan 13.00 og hátíðin stendur til kl. 16.00.
 
Logi Einarsson menningarmálaráðherra setur Flugdaginn og síðan verður dagskrá á vegum Landhelgisgæslunnar, í tilefni afmælisins, áður en glæsileg flugsýning hefst kl. 14.00.
 
Gengið er inn um aðalinngang Flugsafnsins. Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir 13 ára og eldri. Tekið er fram í tilkynningu að gæludýr séu ekki leyfð á svæðinu. Og til að stytta biðröðina inn á svæðið „verður miðasalan tvískipt, önnur fyrir þau sem greiða með reiðufé og hin fyrir þau sem greiða með korti.“
 
 
Þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands tók þátt í Flugdeginum í fyrra eins og stundum áður. Mynd: Þorgeir Baldursson

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00