Fara í efni
Sveitarstjórnarmál

Samfylking stillir upp, Hilda vill efsta sætið aftur

„Á almennum félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöldi var samþykkt samhljóða að skipa uppstillingarnefnd sem fer með það hlutverk að stilla upp lista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hilda Jana Gísladóttir tilkynnti á fundinum að hún vilji áfram leiða flokkinn á Akureyri,“ segir í tilkynningu frá stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri í morgun.

Í uppstillingarnefnd voru kjörin þau Unnar Jónsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Arnar Þór Jóhannesson. Uppstillingarnefnd mun leggja fram tillögu sína á almennum félagsfundi 24. febrúar.

„Fundurinn var vel sóttur og greina mátti spennu og eftirvæntingu fyrir kosningunum í vor. Í almennum umræðum sem fram fóru í kjölfar ákvörðunar um uppstillingu listans kom fram mikil ánægja með störf bæjarfulltrúa og annarra kjörinna fulltrúa Samfylkingarinnar við krefjandi aðstæður á kjörtímabilinu sem senn rennur sitt skeið á enda,“ segir í tilkynningunni.

Ný könnun: 88% ánægð með að búa á Akureyri

Skapti Hallgrímsson skrifar
05. mars 2024 | kl. 12:30

Hilda Jana: Krefjumst tafarlausra úrbóta

Skapti Hallgrímsson skrifar
04. mars 2024 | kl. 14:00

Skipa samninganefnd vegna Blöndulínu 3

Skapti Hallgrímsson skrifar
15. janúar 2024 | kl. 13:00

Opið fyrir umsóknir á lista Nýs upphafs

Skapti Hallgrímsson skrifar
11. janúar 2024 | kl. 10:30

Nýtt „millistykki“ fyrir framboð einstaklinga

Skapti Hallgrímsson skrifar
19. október 2023 | kl. 20:00

Brynjólfur Ingvarsson óskar tímabundins leyfis

Haraldur Ingólfsson skrifar
17. október 2023 | kl. 09:45