Fara í efni
Sveitarstjórnarmál

Kjarnafæði Norðlenska að Ytra-Krossanesi?

Mynd: Þorgeir Baldursson

Á fundi skipulagsráðs Akureyrar í vikunni var lagt fram erindi frá Ágústi Torfa Haukssyni, framkvæmdastjóra Kjarnafæðis Norðlenska ehf. (KN), þar sem óskað er eftir viðræðum við Akureyrarbæ um lóð á svæði austan Týsness undir 7-8000 fermetra byggingu fyrir starfsstöðvar fyrirtækisins. Skipulagsráð tók jákvætt í erindið og fól skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna um svæðið og ræða við KN um framhald málsins.

Í erindi KN kemur fram að óskað sé eftir um 25.000 fermetra lóð undir bygginguna, í landi Ytra-Krossaness austan Týsness og Krossanesborga. Í fundargerð skipulagsráðs segir að umrætt svæði sé skilgreint í aðalskipulagi sem iðnaðarsvæði, merkt I8, og kemur fram í greinargerð að áður en uppbygging hefst á svæðinu þurfi að skoða vandlega hvort nýta eigi svæðið fyrir uppbyggingu iðnaðarstarfsemi eða hvort það geti betur hentað sem íbúðarsvæði eða sem hluti af útivistarsvæði Krossanesborga.

Lóðin sem um ræðir er um það bil svæðið sem er innan rauðu línanna. Mynd: Þorgeir Baldursson

KN vill höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnslu á einn stað

Í bókun skipulagsráðs segir að ráðið telji að umrætt svæði gæti hentað vel til uppbyggingar á starfsemi Kjarnafæðis Norðlenska ehf. Að mati ráðsins sé mikilvægt að meta áhrif uppbyggingar á útivistargæði fólkvangsins í Krossanesborgum og huga að mótvægisaðgerðum þegar svæðið er skipulagt.

Í gögnum málsins kemur fram að KN hafi áhuga á að reisa nýjar höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnslu á Akureyri. Starfsemin við Eyjafjörð hefur undanfarin ár verið við Grímseyjargötu og Fjölnisgötu á Akureyri og á Svalbarðseyri. Fram kemur að starfsstöðvar félagsins séu komnar til ára sinna og henta breyttri starfsemi félagins ekki eins vel og áður, auk þess sem umtalsverð hagræðing er talin felast í því að koma starfseminni undir eitt þak. Vegna eðli starfseminnar telur fyrirtækið að staðsetning sem er á atvinnusvæði í hæfilegri fjarlægð frá íbúðarhverfum henti því best.

Lóðin sem Kjarnafæði Norðlenska hefur áhuga á er efst fyrir miðju á tillöguuppdrætti Akureyrarbæjar af svæðinu.