Fara í efni
Sveitarstjórnarmál

Ívar Örn seldur frá KA til Breiðabliks

Ívar Örn Árnason og Fjóla Sigurðardóttir með soninn Bjarka Bent í Boganum í gær, þar sem þau fylgdust með leik KA og Víkings í Lengjubikarkeppninni. Mynd: Ármann Hinrik
Knattspyrnudeild KA hefur selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks í Kópavogi. Þetta var tilkynnt á samfélagsmiðlum KA rétt í þessu.
 
Ívar, sem leikur sem miðvörður og er fyrirliði liðsins, lék alls 181 keppnisleik fyrir uppeldisfélagið, að því er segir í tilkynningunni; á Íslandsmóti, í bikarkeppni, Evrópukeppni og meistarakeppni KSÍ.  „Hann var í liði KA sem vann sigur í Inkassodeildinni sumarið 2016 sem tryggði félaginu sæti í deild þeirra bestu þar sem liðið hefur leikið allar götur síðan auk þess að vera fyrirliði KA sem varð Bikarmeistari 2024. Þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989,“ segir í tilkynningu KA.
 


Mynd sem birtist á heimasíðu KA í dag.