Fara í efni
Svavar Alfreð Jónsson

Sálfræðitryllir með yfirnáttúrulegu ívafi

AF BÓKUM – 68

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir_ _ _

Margrét S. Höskuldsdóttir hlaut á dögunum Blóðdropann fyrir bókina Lokar augum blám, sem er gríðarlega vel heppnuð glæpasaga sem ég mæli eindregið með. Ég ætla þó ekki að fjalla um hana hér, heldur langar mig að segja ykkur frá fyrstu skáldsögu Margrétar, Dalurinn, sem kom út árið 2022 og er í miklu uppáhaldi hjá mér.

Dalurinn fjallar um Sif, unga konu sem sem er kominn í afskekktan sumarbústað fjölskyldu sinnar í eyðidal vestur á fjörðum. Tímann þar ætlar hún að nýta til þess að leggja lokahönd á meistaraverkefnið sitt og sér fram á góðan vinnufrið í kyrrðinni og einangruninni. Friðurinn er þó fljótt rofinn þegar erlendur ferðamaður lendir í ógöngum í dalnum og Sif býður honum gistingu í bústaðnum hjá sér.

Fljótlega fer Sif að finna fyrir óþægilegri nærveru og það er ljóst að ekki er allt með felldu... Getur verið að reimt sé í dalnum eða eru fleiri á ferð á þessum afskekkta stað? Er skynsamlegt að bjóða bláókunnum manni gistingu þegar það er ekki einu sinni símasamband á svæðinu?

Sagan er bæði spennandi og óþægileg á köflum, því lesandinn áttar sig fljótt á því að það er ekki allt sem sýnist. Utan alfaraleiðar og sambandslaus kemst Sif að því að hún getur engum treyst nema sjálfri sér.

Þetta er bók sem ég mæli hiklaust með fyrir öll sem kunna meta góðan sálfræðitrylli og aðdáendur Freidu McFadden og B. A. Paris ættu ekki að láta þessa bók framhjá sér fara.

Svo má til gamans geta þess að Margrét Höskuldsdóttir verður með ritlistakvöld Ungskálda á LYST þann 18. mars næstkomandi. Glæpsamlega skemmtilegt kvöld sem ekkert skapandi ungmenni á aldrinum 16-25 ár ætti missa af.

Kirkjulegar hvalveiðar og ómetanlegt kvenfélag

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
17. nóvember 2025 | kl. 14:00

Kamarsnið á turninum eins og dómkirkjunni

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
16. nóvember 2025 | kl. 06:00

Fegursta kirkjustæði hérlendis og erlendis

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
15. nóvember 2025 | kl. 14:30

Jólakvöld séra Svavars Alfreðs

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
23. desember 2024 | kl. 12:30

Orðhákar og töfralausnir

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
14. nóvember 2024 | kl. 08:30

Meðhjálparinn

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
07. nóvember 2024 | kl. 10:30