Fara í efni
Svavar Alfreð Jónsson

Hús BSO rifið eða flutt á annan stað?

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Akureyrarbær og Bifreiðastöð Oddeyrar ehf. (BSO) hafa komist að samkomulagi um niðurfellingu dómsmáls BSO á hendur bænum, sem höfðað var vegna deilu um lóðarmál stöðvarhúss BSO í miðbænum. Í samkomulaginu er einnig kveðið á um að Akureyrarbær greiði BSO 5,5 milljónir króna fyrir aðgang Slökkviliðs Akureyrar að stöðvarhúsinu til æfinga og annist í framhaldinu niðurrif þess.

Akureyrarbær hafði gert BSO að fara með mannvirki sín af lóðinni, vegna breytinga á deiliskipulagi og fyrirhugaðrar uppbyggingar í miðbænum. BSO vildi ekki una því og höfðaði dómsmál. Nú hefur verið samið um að BSO láti dómsmálið niður falla og afhendi Slökkviliði Akureyrar stöðvarhúsið til æfinga þann 1. maí næstkomandi. Í samkomulaginu kemur einnig fram að Akureyrarbær greiði BSO 5,5 milljónir króna fyrir aðgengi slökkviliðsins að húsinu. 

Mynd: Þorgeir Baldursson

Verður húsið rifið eða flutt?

„Húsið skal afhenda í því ástandi sem Slökkvilið og BSO sammælast um. Akureyrarbær mun annast niðurrif hússins og fjarlægja afleiðingar æfinganna,“ segir orðrétt í samkomulagi Akureyrarbæjar og BSO.

Samkomulagið var lagt fram til kynningar á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær og samkvæmt því sem ráðið bókaði um málið verða örlög stöðvarhússins ekki þau sem greint er frá í samkomulaginu.

Bókun bæjarráðs: „Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa húsið fyrir áhugasama aðila til flutnings og enduruppbyggingar á öðrum stað eftir að æfingum slökkviliðs er lokið enda eigi þær ekki að skila húsinu í verra ástandi en það er í dag.“

Hver sem örlög hússins verða að lokum er þó ljóst að sú starfsemi sem fram hefur farið í því undanfarna áratugi verður úr sögunni í lok þessa mánaðar og eins og akureyri.net hefur greint frá munu bílstjórarnir sextán á BSO ganga til liðs við Hreyfil.

Kirkjulegar hvalveiðar og ómetanlegt kvenfélag

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
17. nóvember 2025 | kl. 14:00

Kamarsnið á turninum eins og dómkirkjunni

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
16. nóvember 2025 | kl. 06:00

Fegursta kirkjustæði hérlendis og erlendis

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
15. nóvember 2025 | kl. 14:30

Jólakvöld séra Svavars Alfreðs

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
23. desember 2024 | kl. 12:30

Orðhákar og töfralausnir

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
14. nóvember 2024 | kl. 08:30

Meðhjálparinn

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
07. nóvember 2024 | kl. 10:30