Hjólreiðar, frjálsar og útileikir Akureyrarliða
Í dag er síðasti dagur hjólreiðahátíðarinnar sem staðið hefur yfir í Eyjafirði, sem og Meistaramóts Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. Fótboltinn fer svo aftur að rúlla og bæði karlaliðin frá Akureyri eiga útileik í dag.
Lokadagur hjólreiðanna
Götuhjólreiðahelgi Hjólreiðafélags Akureyrar lýkur með Criterium-keppni á um tveggja kílómetra löngum hring á Akureyri í dag. Upplýsingar um viðburðinn má finna á vef Hjólreiðasambands Íslands og á Facebook-síðu Hjólreiðafélagsins.
Criterium-keppni fer þannig fram að brautin er hjóluð í fyrirfram ákveðinn tíma, en þegar tíminn er liðinn hjóla allir keppendur einn hring til viðbótar, svokallaðan bjölluhring.
- Íslandsmeistaramót í Criterium kl. 10
Ræst er í U-flokkum kl. 10, A- og B-flokkum kvenna kl. 11 og A-flokki karla kl. 12. Í kvenna- og karlaflokki er hjólað í klukkutíma, auk bjölluhrings, en í 45 mínútur í U-flokkunum. Hjólað er um Goðanes og Baldursnes. Hringurinn er 2,17 kílómetrar.
Lokadagur Meistaramótsins
Lokadagur Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára er í dag. Keppnisgreinar dagsins eru, samkvæmt tímaseðli á vef FRÍ: Grindahlaup, hástökk, þrístökk, kúluvarp, langhlaup, spretthlaup og boðhlaup.
- Dagskrá mótsins á mótavef FRÍ - sjá hér.
Útileikir Akureyrarliðanna
Bæði karlalið Akureyrar í knattspyrnunni eiga útileik í dag. Þór sækir FH heim á Kaplakrikavöll í Hafnarfirði og KA sækir Breiðablik heim á Kópavogsvöll. Tveir leikir gegn liðum á suðvesturhorninu, tveimur af örfáum liðum á landinu sem ekki hafa selt nafnið á sínum heimavelli.
Leikir dagsins eru liður í 11. umferð mótsins, þeirri síðustu í fyrri hluta hinnar hefðbundnu deildarkeppni.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 11. umferð
Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 18
FH - Þór - Besta deild karla í knattspyrnu, 11. umferð
Kópavogsöllur kl. 18
Breiðablik - KA
Að loknum tíu umferðum er KA í 9. sæti Bestu deildar karla með tíu stig, en Þór er í 11. og næstneðsta sætinu með sex stig. Eina liðið fyrir neðan Þór er FH og stigin því afar mikilvæg fyrir bæði félögin.
Kamarsnið á turninum eins og dómkirkjunni
Fegursta kirkjustæði hérlendis og erlendis
Jólakvöld séra Svavars Alfreðs
Orðhákar og töfralausnir