Hafdís önnur, Harpa vann B – MYNDIR
Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar (HFA) var aðeins rúmum fimmtung úr sekúndu frá því að vinna annan Íslandsmeistaratitil sinn í þessari viku þegar Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum fór fram í Svarfaðardal í dag. Harpa Mjöll Hermannsdóttir vann B-flokk kvenna.
Keppnin í A-flokki kvenna var hnífjöfn og munaði aðeins sekúndubrotum á fyrstu þremur keppendunum. Hafdís kom í mark á 3:24:35,66 klukkustundum, en Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr Tindi var 0,23 sekúndum á undan henni í mark. Sara Árnadóttir úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur var síðan aðeins 0,05 sekúndum á eftir Hafdísi.

Þarna eru 117 kílómetrar að baki og endaspretturinn í A-flokki kvenna í algleymingi. Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr Tindi fyrst, þá Hafdís Sigurðardóttir úr HFA (í rauðu) og Sara Árnadóttir úr HFR. Aðeins munaði 0,28 sekúndum á keppendunum í fyrsta og þriðja sætinu. Mynd: Ármann Hinrik.
Harpa Mjöll Hermannsdóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar vann B-flokk kvenna og varð tveimur sekúndum á undan öðrum keppanda úr HFA, Þórdísi Rósu Sigurðardóttur, móður Hafdísar.
Hjólreiðafélag Akureyrar átti sex keppendur í dag. Árangur þeirra var sem hér segir:
- A-flokkur kvenna, 117 km
2. sæti: Hafdís Sigurðardóttir – 3:24:35,66 – 0,23 sekúndum á eftir sigurvegara
Silja Jóhannesdóttir og Sóley Kjerúlf Svansdóttir luku ekki keppni - B-flokkur kvenna, 70 km
1. sæti: Harpa Mjöll Hermannsdóttir – 2:28:15,58 – 2 sekúndum á undan næsta keppanda
2. sæti: Þórdís Rósa Sigurðardóttir – 2:28:17,58 - B-flokkur karla, 92 km
6. sæti: Bjarni Jónasson – 2:39:25,05 – 8:39 mínútum á eftir sigurvegara

Harpa Mjöll Hermannsdóttir og Þórdís Rósa Sigurðardóttir, báðar úr Hjólreiðafélagi Akureyrar, kepptu í B-flokki, hjóluðu 70 kílómetra og þegar í mark var komið varð Harpa Mjöll tveimur sekúndum á undan. Mynd: Ármann Hinrik.
Sigurvegarar í einstökum flokkum
- Konur
A-flokkur, 117 km: Bríet Kristý Gunnarsdóttir, Tindi – 3:24:35,43 – 0,23 sek. á undan næsta keppanda
B-flokkur, 70 km: Harpa Mjöll Hermannsdóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar – 2:28:15,58 – 2 sek. á undan næsta
U17 flokkur, 46 km: Friðrika Rún Þorsteinsdóttir, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur – 1:48:29,20 – 3:18 mín. á undan næsta - Karlar
A-flokkur, 140 km: Davíð Jónsson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur – 3:22:07,78 – 18 sek. á undan næsta
B-flokkur, 92 km: Páll Snorrason, Tindi – 2:30:46,06 – 0,7 sek. á undan næsta
Junior, 92 km: Einar Valur Bjarnason, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur, 2:30:47,38 – 8,89 sek. á undan næsta
U13 flokkur: Matthías Árni Jónsson, Tindi – 58:25,91 mínútur
Öll úrslit má finna á vefnum timataka.net.
Ármann Hinrik var sem fyrr á ferð með myndavél og linsur að vopni og má sjá afraksturinn í albúmi hér að neðan.
Kamarsnið á turninum eins og dómkirkjunni
Fegursta kirkjustæði hérlendis og erlendis
Jólakvöld séra Svavars Alfreðs
Orðhákar og töfralausnir