Fara í efni
Svavar Alfreð Jónsson

Hildigunnur hættir í dag sem forstjóri SAk

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, þegar ráðherra kom í heimsókn í nóvember á síðasta ári. Mynd: sak.is.

Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) frá og með deginum í dag. Þetta tilkynnti hún í pósti til starfsmanna stofnunarinnar fyrir nokkrum mínútum.

Tilkynning Hildigunnar er svohljóðandi:

Kæra samstarfsfólk.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili mínu.

Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni.

Það hefur verið mér mikill heiður að starfa með ykkur undanfarin ár og áratugi. Á þessum árum höfum við tekist á við krefjandi verkefni, byggt upp starfsemina og styrkt stöðu sjúkrahússins í þágu sjúklinga og samfélagsins.

Ég vil þakka ykkur af heilum hug fyrir ykkar fagmennsku, elju og samstarf. Hlýjar kveðjur, Hildigunnur Svavarsdóttir

Á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að skipunartími forstjóra SAk átti að renna út 31. ágúst næstkomandi. Þar segir að embættið verði auglýst innan skamms en Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs sjúkrahússins, muni gegna starfinu þar til nýr forstjóri hefur verið skipaður.

Meira síðar

Kirkjulegar hvalveiðar og ómetanlegt kvenfélag

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
17. nóvember 2025 | kl. 14:00

Kamarsnið á turninum eins og dómkirkjunni

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
16. nóvember 2025 | kl. 06:00

Fegursta kirkjustæði hérlendis og erlendis

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
15. nóvember 2025 | kl. 14:30

Jólakvöld séra Svavars Alfreðs

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
23. desember 2024 | kl. 12:30

Orðhákar og töfralausnir

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
14. nóvember 2024 | kl. 08:30

Meðhjálparinn

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
07. nóvember 2024 | kl. 10:30