Síðasti opnunardagur Safnasafnsins í ár
Upp er runninn sunnudagur 4. október, síðasti sýningardagur ársins í Safnasafninu á Svalbarðseyri. Af því tilefni verður frítt inn á safnið allan daginn og efnt til sérstakrar listasmiðju fyrir börn og fjölskyldur.
Á meðal sýninga ársins er Frá hafi til himins með klippimyndum Kiko Korriro, Ísland úr fjarska, sem unnin er í samstarfi við Listasafn Íslands og Valsárskóla, Litið um öxl með verkum Jóns Laxdals og Þvílíkasafnið, þar sem verk Bjarna H. Þórarinssonar eru í forgrunni. Fjölmörg önnur verk má einnig sjá á safninu, meðal annars eftir Hrafnkel Sigurðsson, Rósu Sigrúnu Jónsdóttur, Auði Lóu Guðnadóttur, Þórunni Elísabetu Sveinsdóttur og Tómas Jónsson.

Níels Hafstein, fyrir miðri mynd, er stofnandi og safnstjóri Safnasafnsins.
Afmælisgjöfin á síðasta degi sýningartímabilsins verður klippimyndasmiðja með listakonunni Jonnu kl. 13-15. Þar verður sóttur innblástur í verk Kiko Korriro og þátttakendur fá að klippa, raða, líma og skapa eigin myndverk. Hægt er að koma við hvenær sem er á meðan smiðjan stendur yfir og þátttaka er ókeypis.
Safnasafnið verður opið frá klukkan 10 til 17 í dag, sunnudag, og verður þetta jafnframt síðasta tækifærið til að sjá sýningar ársins áður en safninu verður lokað fyrir veturinn, eins og áður sagði.