Súlur vertical
Silfurverðlaun á Norðurlandamóti
13.08.2025 kl. 16:30

U15 landslið stúlkna og drengja á óopinberu Norðurlandamóti í körfuknattleik. Stúlkurnar unnu sitt mót, en drengirnir fengu silfur. Myndin er af vef KKÍ.
U15 drengjalandslið Íslands í körfuknattleik vann til silfurverðlauna á óopinberu Norðurlandamóti sem er nýlokið. Ármann Tumi Bjarkason úr Þór var eini fulltrúi Akureyringa í liðinu. Á sama tíma vann U15 landslið kvenna til gullverðlauna, en þar eiga Akureyringar engan fulltrúa.
Ármann Tumi lenti reyndar í því leiðindaatviki að togna tveimur vikum fyrir mót svo hann náði ekki að beita sér að fullu í þetta skiptið og æfði ekkert með liðinu. Hann kom inn á í tveimur leikjum, gegn Dönum og í úrslitaleiknum gegn Þjóðverum og stóð fyrir sínu.
Þórsarinn Ármann Tumi Bjarkason í landsliðsbúningnum. Aðsend mynd.
Íslenska drengjaliðið vann það finnska og danska, en tapaði tvívegis fyrir því þýska, í seinna skiptið eftir framlengdan úrslitaleik.
Úrslit leikja drengjaliðsins:
- Ísland – Finnland 79-78
- Ísland – Þýskaland 66-47
- Ísland – Danmörk 95-76
- Ísland – Þýskaland 75-82
Framlengdur úrslitaleikur - Landsliðshópar Íslands
- Frétt á vef KKÍ um árangur liðanna.