Fara í efni
Súlur vertical

Fólki er ógnað þótt vopnin séu leikföng

Hér má sjá leikfangabyssu eins og þær sem Vísir segir að lögreglan hafi lagt hald á í gær.

Vopnin sem urðu til þess að fimm ungir menn voru handteknir við gatnamót Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis í gær reyndust vera leikföng, eftirlíking af þekktum vopnum. Upplýsingar um málið komu ekki fram í tilkynningu lögreglunnar í morgun um verkefni liðins sólarhrings, en hið sanna hefur komið fram í svörum lögreglunnar í fjölmiðlum í dag. 

Í frétt Rúv í dag er vitnað í aðstoðaryfirlögregluþjón hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra sem segir að málinu verði sannarlega fylgt eftir. „Þarna er fólki ógnað þrátt fyrir að ekki sé um raunveruleg vopn að ræða. Fólki stendur ógn af verkfæri sem lítur alveg eins út eins og vopn. Þetta er hegðun sem er langt frá því að vera eðlileg og ekki síst náttúrlega innan um mannfjölda sem ekki þekkir til. Þó að eitthvað virki sem grín og skemmtilegheit í einhverjum þröngum hópi þá er það það ekki í svona aðstæðum,“ segir Hjalti Bergmann Axelsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Norðurlandi eystra í frétt Rúv og að ekki sé útilokað að mennirnir verði kærðir fyrir vopnalagabrot.

Fram hefur komið að fimmmenningarnir séu um tvítugt en Vísir segir í dag að sá yngsti sé 17 ára – sjá frétt Vísis hér.

Atburðarásin í grófum dráttum eins og henni er lýst í fréttinni:

  • Tilkynning barst um kl. 13:40. Sérsveitarmenn kallaðir til.
  • Bílarnir sem um ræðir fundust mannlausir í miðbænum.
  • Eftir að mennirnir fóru aftur í bílana og óku af stað um kl. 14:50 veitti lögregla þeim eftirför.
  • Í eftirförinni er einhvers konar vopni veifað úr að minnsta kosti öðru ökutækinu og því beint að fólki í kring.
  • Eftir að ástandið er tryggt kom í ljós að um leikföng var að ræða, eða eftirlíkingar af skotvopnum.
  • Mennirnir handteknir og færðir til yfirheyrslu, sleppt í gærkvöld að skýrslutöku lokinni.
  • Mennirnir voru samstarfsfúsir og hlýddu öllum fyrirmælum, báru fyrir sig að hafa ekki áttað sig á alvarleika þessarar hegðunar.

Í lok fréttar Rúv er spurt hvort ástæða sé fyrir því að ekki hafi verið greint frá því í gær að um eftirlíkingar væri að ræða og svar aðstoðaryfirlögregluþjónsins er: „Það er engin sérstök ástæða fyrir því. Þetta eru bara upplýsingar sem við vorum ekki að setja út. Við höfðum þessar upplýsingar í rauninni ekki fyrr en það var búið að ná utan um verkefnið.“