Sólskinsbrosandi hlauparar – MYNDIR
Kröfuganga verkalýðsfélaga hefur í áratugi verið fastur liður á fyrsta degi maí mánaðar á Akureyri sem annars staðar og þótt ekkert verði alhæft hér er tilfinningin þó sú að það sé regla frekar en undantekning að veðurguðirnir séu ekki í góðu skapi. Annar siður hefur verið viðhafður lengi í höfuðstað Norðurlands og sá yljar viðstöddum um hjartarætur, jafnvel þótt kalt sé og napur vindur blási, nefnilega 1. maí hlaup Ungmennafélags Akureyrar, þar sem börn úr leik- og grunnskólum bæjarins og næstu sveitarfélaga eru í aðalhlutverki.
Gleðin skein úr flestum andlitum á hlaupabrautinni á Þórsvellinum í hádeginu í dag þegar þetta skemmtilega hlaup hófst. Leikskólabörn riðu á vaðið að vanda og hlupu einn hring á vellinum, 400 metra. Að því loknu voru grunnskólabörn ræst i nokkrum hópum en þau gátu valið um að hlaupa 2 eða 5 kílómetra. „Fólk á öllum aldrei“, eins og það er orðað, gat einnig þreytt hlaupið og lagði þá 5 km að baki.








