Þór-KR, Víkingur-KA og Akureyrarhlaupið
Bæði Akureyrarliðin verða á ferðinni í dag, í Bestu deild karla í knattspyrnu, Þór tekur á móti KR en KA sækir topplið Víkings heim í Reykjavík. Akureyrarhlaupið er á dagskrá í kvöld og N1 mót stráka heldur áfram.
Besta deild karla
Þórsarar fá KR-inga í heimsókn í dag og sem fyrr er mikið í húfi. Þórsliðið fór niður í 12. og neðsta sæti deildarinnar eftir tap fyrir Val um síðustu helgi, er með jafn mörg stig og FH en lakari markatölu. Þór og FH eru með 7 stig eftir 12 leiki. KR er í öðru sæti deildarinnar með 28 stig að loknum 13 leikjum. KR-ingar töpuðu fyrir Keflvíkingum á útivelli um síðustu helgi.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 13. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 17.00
Þór - KR
- - -
KA-menn ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í dag því þeir heimsækja topplið Víkings sem hefur verið nær óstöðvandi í sumar. Víkingar hafa unnið 12 leiki af 13 og gert eitt jafntefli; eru því með 37 stig og markahlutfall þeirra er með ólíkindum. Liðið hefur skorað 45 mörk en aðeins fengið á sig 7.
KA hefur tapað fimm síðustu leikjum og er dottið niður í 10. sæti deildarinnar, er með 10 stig, þremur meira en Þór og FH. KA tapaði síðasta leik 3:1 fyrir Stjörnunni á útivelli.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 13. umferð
Víkingsvöllur kl. 19:15
Víkingur - KA
Akureyrarhlaupið
Hið vinsæla almenningshlaup, Akureyrarhlaup atNorth og UFA, fer fram í kvöld. Boðið er upp á þrjár vegalengdir, 5 km, 10 km og hálfmaraþon (21,1 km). Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni; keppt er um Íslandsmeistaratitla karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.
Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um Eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka, eins og það er orðað á vef hlaupsins.
- Akureyrarhlaup atNorth og UFA
Ræsing í hálfmaraþoni (hægari) kl. 19:00
Ræsing í hálfmaraþoni (hraðari) kl. 19:30
Ræsing í 5 og 10 km hlaupi kl. 20:00
Verðlaunaafhending kl. 21:30-22:00
Opið er fyrir skráningu til kl. 18:30 í dag. Allar upplýsingar um hlaupið má finna á síðu hlaupsins á vef UFA - Akureyrarhlaup | UFA.
N1 mótið
N1 mót KA í knattspyrnu hófst í gær og stendur þar til síðdegis á laugardag. Þar keppa strákar í 5. flokki (11 og 12 ára) og mótið fer nú fram í 40. skipti. Samkvæmt upplýsingum á mótsvefnum verða spilaðir um þúsund leikir. Ýmislegt er um að vera í kringum mótið, meðal annars stór kvöldskemmtun á föstudag.
Allar upplýsingar um mótið, svo sem leikjadagskrár, úrslit og allt annað má finna á mótsvefnum, þar sem yfirsloðin er n1motid.is, en á vefsíðu mótsins má finna allar upplýsingar um strákamótið sem er á dagskránni í vikunni - N1 mótið. og á Facebook-síðu mótsins.