Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur
Miðað við fyrstu tölur, eftir að 4.000 atkvæði hafa verið talin, er meirihlutinn í bæjarstjórn Akureyrar fallinn. L-listinn er með mest fylgi en missir þó einn mann frá síðustu kosningum skv. þessu – fengi 2 núna. L-listinn hefur verið í meirihluta með Sjálfstæðisflokki, sem heldur tveimur bæjarfulltrúum og Miðflokknum sem heldur sínum eina fulltrúa. Í bæjarstjórn sitja 11 manns.
Þórhallur Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem stofnaði Akureyrarlistann í vetur kemst í bæjarstjórn miðað við fyrstu tölur en Viðreisn, sem einnig býður fram í fyrsta skipti á Akureyri, nær ekki inn manni.
Samfylkingin er með nánast sama fylgi og L-listinn og bætir við sig einum bæjarfulltrúa, fengi tvo.

Tveir nýliðar í bæjarstjórn. Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins og Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-listans ræða við fréttamann RÚV í beinni útsendingu í Verkmenntaskólanum eftir að fyrstu tölur voru birtar.
Hér má stöðuna eftir að 4.000 tölur hafa verið taldar á Akureyri. Og niðurstöðuna fyrir fjórum árum
L - listi - Bæjarlisti Akureyrar – 18,7% - Fengi 2 bæjarfulltrúa, Óðin Svan Óðinsson sem var nýr á lista og Brynju Hlíf Þorsteinsdóttur sem situr í bæjarstjórn í dag.
2022: 19% og 3 bæjarfulltrúar.
S - listi Samfylkingarinnar – 18,3% - Fengi 2 bæjarfulltrúa, Sindra S. Kristjánsson bæjarfulltrúa og Hönnu Dóru Markúsdóttur.
2022: 12% og 1 bæjarfulltrúi.
D - Listi Sjálfstæðisflokksins – 18,2% - Fengi 2 bæjarfulltrúa, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, sem er nýr oddviti, og Heimi Örn Árnason bæjarfulltrúa.
2022: 17% og 2 bæjarfulltrúar.
B - Listi Framsóknarflokksins – 15,5% - Fengi 2 bæjarfulltrúa, Sunnu Hlín Jóhannesdóttur og Gunnar Má Gunnarsson. Þau eru núverandi bæjarfulltrúar flokksins.
2022: 17% og 2 bæjarfulltrúar.
V - listi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs – 8,3% - Fengi 1 bæjarfulltrúa, Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur sem setið hefur í bæjarstjórn fyrir flokkinn síðustu fjögur ár.
2022: 7% og 1 bæjarfulltrúi.
A - Akureyrarlistinn – 7,5% - Fengi 1 bæjarfulltrúa, Þórhall Jónsson fv. bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Nýtt framboð
M - listi Miðflokksins – 7,5% - Fengi 1 bæjarfulltrúa, Hlyn Jóhannsson, núverandi bæjarfulltrúa.
2022: 8% og 1 bæjarfulltrúi.
C - Viðreisn – 5,9% - Fengi ekki bæjarfulltrúa.
Nýtt framboð.
Þrjú framboð í kosningunum 2022 taka ekki þátt að þessu sinni:
F - listi Flokks fólksins –
2022: 12% og 1 bæjarfulltrúi.
K - listi Kattaframboðsins –
2022: 4%. Enginn bæjarfulltrúi.
P- listi Pírata –
2022: 3%. Enginn bæjarfulltrúi.

Þau sitja öll áfram í bæjarstjórn miðað við fyrstu tölur. Hlynur Jóhannsson Miðflokki, Sindri S. Kristjánsson Samfylkingu og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir VG.

Bæjarfulltrúar Framsóknar, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson, og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir bæjarfulltrúi VG, fylgdust spennt með kosningasjónvarpi RÚV í símanum áður en fyrstu tölur voru lesnar upp á Akureyri.