Ný vefsíða auðveldar norðurljósaskoðun
Ferðaþjónustufyrirtækið Guide to Iceland hefur opnað nýja norðurljósaspá fyrir Ísland sem á að auðvelda erlendum ferðamönnum að finna bæði rétta tímann og hentugan stað til að sjá norðurljósin. Spáin er ókeypis, öllum opin og fáanleg á 16 erlendum tungumálum.
Eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Guide to Iceland byggist spáin meðal annars á Kp-stuðli, mælingum á sólvindi og skýjahulu og nær yfir níu svæði á Íslandi. Hægt er að skoða aðstæður klukkustund fyrir klukkustund næstu 72 klukkustundirnar og einnig lengri horfur allt að þrjár vikum fram í tímann. Þar má jafnframt sjá upplýsingar um sólarupprás, sólsetur og tunglstöðu.
- Ein helsta nýjungin er að spáin gefur upp besta tímann til að sjá norðurljósin á hverjum stað. Notandinn þarf því ekki sjálfur að túlka mismunandi tölur og upplýsingar til að komast að því hvenær líkurnar eru mestar.
- Önnur nýjung snýr að öryggi. Spáin getur vísað á útsýnisstaði þar sem hægt er að leggja bílnum, þannig að fólk þurfi síður að stöðva úti í vegkanti þegar norðurljósin birtast.
„Fólk keyrir út úr borginni, sér grænan bjarma og stoppar þar sem það er statt. Það er hættulegt, bæði fyrir ökumanninn og þá sem á eftir koma,“ segir Ingólfur Shahin, forstjóri Guide to Iceland í fréttatilkynningunni. Hann segir tilganginn vera að gera fólki kleift að skipuleggja norðurljósaferðir betur, bæði með tilliti til þess hvenær líkurnar eru bestar og hvert sé öruggt að fara.
Norðurljósaspáin er aðgengileg hérna á vef Guide to Iceland.