Fara í efni
Slippurinn - Akureyri

Ertu sammála Sigmundi Davíð um Ráðhústorg?

Svona gæti Ráðhústorgið á Akureyri litið út samkvæmt mynd sem Sigmundur Davíð birti á Facebooks síðu sinni. Myndin var gerð með aðstoð gervigreindarinnar og sýnir hús 7-9 við Ráðhústorg ef byggt yrði ofan á það. Myndin er tekin af Facebooksíðu Sigmundar Davíðs.

Skipulagsmál eru Sigmundi Davíði Gunnlaugssyni, alþingismanni fyrir Norðausturkjördæmi og formanni Miðflokksins,  ofarlega í huga en hann hefur undanfarið birt nokkur dæmi á Facebooksíðu sinni um það hvernig ákveðnir staðir á Íslandi gætu litið út með smá breytingum. Nýlega setti hann t.d. inn mynd af Ráðhústorginu á Akureyri sem vakið hefur töluverða athygli á netinu en eftirfarandi texti fylgdi með:

„Ég hef lengi átt mér þann draum að Ráðhústorgið á Akureyri verði klárað. Elstu húsin vestan megin verði gerð upp, gamli Landsbankinn fullbyggður og lokið við að byggja nr. 7 – 9 til samræmis við systurhúsið 1 –5. Nú gæti það loks gerst,“ segir Sigmundur Davíð en útskýrir ekki nánar hvað hann meinar með því að nú gæti það loks gerst.

Við færsluna birtir Sigmundur mynd af húsi númer 7-9 eins og það er í dag en skemmtistaðurinn Vamos er m.a. til húsa þar. Þá birtir hann einnig mynd sem hann nýtti gervigreindina í að teikna sem sýnir hvernig húsin gætu litið út ef húsalengjan yrði byggð upp í svipuðum stíl og það sem hann kallar systurhúsið, númer 1-5, en þar eru m.a. til húsa R5 bar, Indian Curry house og Kasa fasteignir.

Mynd af Facebooksíðu Sigmundar Davíðs sem sýnir hús 7-9 við Ráðhústorg. Gervigreindarmynd hans sýnir hvernig húsin gætu litið út ef byggt væri ofan á þau og þau færð í svipaðan stíl hvað glæsileika varðar og Landsbankahúsið gamla við Strandgötu 1. 

Sigmundur Davíð er með fleiri skipulagshugmyndir fyrir miðbæ Akureyrar en nýlega birti hann líka mynd af Kaupvangsstræti 6, sem nú hýsir veitingastaðinn RUB23, en við þá færslu skrifar hann:

„Hér í Gilinu væri tilvalið að endurbyggja hús sem brann og var rifið fyrir mörgum áratugum. Það myndi fegra ásýndina til muna og bæta heildarmyndina. Jarðhæðin stendur enn og hægt er að byggja ofan á hana.“

Efri myndin sýnir hvernig Kaupvangsstræti 6 lítur út í dag en neðri myndin er úr fortíðinni. Myndirnar eru teknar af Facebooksíðu Sigmundar Davíðs.