Tvöföld tvenna Chloe í sigri Þórs á ÍR
Kvennalið Þórs í körfubolta vann lið ÍR með 24 stiga mun, 98-74, í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Chloe Wilson náði tvöfaldri tvennu, skoraði 29 stig fyrir Þór og tók 20 fráköst, endaði með 43 framlagspunkta. Emma Karólína Snæbjarnardóttir skoraði 28 stig.
Sigur Þórs var öruggur og aldrei í hættu. Liðið náði góðri forystu strax í fyrsta fjórðungi og lét hana ekki af hendi. Munurinn var 14 stig eftir fyrsta leikhlutann, en undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi þess seinni náðu ÍR-ingar að minnka muninn niður fyrir tíu stigin, en þó ekki nema tímabundið. Þórsstelpurnar juku muninn aftur, náðu mest 28 stiga forskoti, 78-50, þegar rúmar sjö mínútur voru eftir og enduðu með 24 stiga sigri.
Þór - ÍR (27-13) (18-21) 45-34 (24-13) (29-27) 98-74
Helstu tölur hjá leikmönnum Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Chloe Wilson 29/20/5 - 43 framlagspunktar
- Emma Karólína Snæbjarnardóttir 28/7/1
- Yvette Adriaans 20/9/6
- Emilie Ravn 7/5/4
- Sigurlaug Eva Jónasdóttir 6/0/2
- Hjörtfríður Óðinsdóttir 5/0/1
- Karen Lind Helgadóttir 3/5/1
Aþena er á toppi deildarinnar, hefur unnið 12 leiki eins og Þór, en á leik til góða og auk þess betri árangur í innbyrðis viðureignum við Þór. Aþena sækir Vestra heim í dag. Þór hefur unnið 12 og tapað tveimur leikjum. Fjölnir er í 3. sætinu með 11 sigra í 14 leikjum.