Fara í efni
Skógræktarfélag Eyfirðinga

Sanngjarn sigur Blika á Þór/KA í Boganum

Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, með boltann í gær. Blikarnir eru, frá vinstri, Agla María Albertsdóttir, Heiða Ragney Viðarsdóttir – fyrrverandi samherji Söndru María í yngri flokkum Þórs og meistaraflokki Þórs/KA – og Líf Joostdóttir van Bemmel. Mynd: Ármann Hinrik

Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu sanngjarnan 2:0 sigur á Þór/KA í gær í Bestu deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Það var Birta Georgsdóttir sem gerði bæði mörkin í fyrri hálfleik.

Þegar níu umferðir eru að baki eru Breiðablik, FH og Þróttur efst og jöfn með 22 stig, en Þór/KA og Fram koma næst með 15 stig.

Breiðablik fékk dauðafæri strax á fjórðu mínútu en Birta potaði boltanum rétt framhjá markinu af stuttu færi. Það var lygilegt að Birta skyldi ekki skora en ekki voru liðnar nema rúmar 14 mínútur af leiknum þegar hún bætti upp fyrir klúðrið og kom Blikum í 1:0. Agla María Albertsdóttir fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Þórs/KA og sendi inn fyrir vörnina, Birta var fljótari en mótherjarnir, náði boltanum og skoraði utarlega úr vítateignum.

Birta Georgsdóttir skorar fyrra mark sitt í Boganum í gær. Mynd: Ármann Hinrik

Breiðablik komst í 2:0 eftir 35 mínútur. Sókn Blika var góð en heppnin þó með þeim; Samantha Rose Smith, sem lék mjög vel á miðjunni í gær, óð upp hægra kantinn og gaf boltann laglega á Birtu í miðjum vítateignum. Hulda Björg Hannesdóttir var næsti varnamaður en varð fyrir því óláni að detta og Birta hafði tíma til að snúa sér við óáreitt og skoraði af öryggi.

Liði Þórs/KA var stillt öðru vísu upp en venjulega að því leyti að Sandra María Jessen var á hægri kantinum en ekki þeim vinstri, og Hulda Ósk Jónsdóttir var á bekk varamanna. Þar var einnig Sonja Sigurðardóttir en Amalía Árnadóttir miðherji – fremsti sóknarmaður. Þá var Ellie Rose Moreno á vinstri kantinum.

Glæsilegt skot Söndru Maríu Jessen í blálokin þar sem boltinn small í þverslánni. Þar sluppu Íslandsmeistararnir með skrekkinn. Myndir: Ármann Hinrik

Söndru Maríu varð lítið ágengt í því að herja á gestina, eins og heimaliðinu almennt, enda Blikarnir mun meira með boltann lungann úr leiknum og leikmönnum Þórs/KA virtist í sjálfu sér ekki líka það illa. Þór/KA varðist hins vegar bærilega en þegar upp var staðið skipti það sköpum að gæðamunur er á liðunum; gestirnir voru öruggari í því sem þeir ætluðu sér, léku boltanum betur á milli sín og lentu sjaldan í vandræðum.

Liði Þórs/KA gekk ekki vel að halda boltanum, sendingar voru iðulega ónákvæmar og sjálfstraust sumra leikmanna virtist ekki mikið. „Stelpurnar okkar“ hefðu vissulega getað skorað, undir lok fyrri hálfleiks komst liðið í góða stöðu eftir laglegt spil Margrétar Árnadóttur og Ellie Rose og aftur skapaðist hætta við mark Breiðabliks snemma í seinni hálfleik þegar Telma Ívarsdóttir varði skot Ellie Rose mjög vel. Undir lok leiksins átti Sandra María svo glæsilegt skot þar sem boltinn small í þverslá.

Heil umferð fer fram um næstu helgi þegar Þór/KA fær Víking í heimsókn en síðan verður gert rúmlega mánaðar hlé á deildinni vegna Evrópukeppni landsliða þar sem Sandra María Jessen verður á ferðinni með landsliði Íslands.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Athugið – Þegar þetta er skrifað er leikskýrslan  á vef KSÍ ekki rétt að öllu leyti. Hulda Björg Hannesdóttir er þar sögð hafa komið inn á á 64. mínútu en hún hóf leikinn. Það var Hulda Ósk Jónsdóttir sem kom þá inná.