Nýr Landspítali upplýsir nágranna SAk
„Framkvæmdasvæðið verður girt af og komið verður upp þvottastöð fyrir vinnubíla til þess að tryggja að óhreinindi berist ekki út á götur.“ Þetta er á meðal þess sem stendur í litlum bæklingi sem dreift hefur verið á heimili í nágrenni Sjúkrahússins á Akureyri í tilefni af því að nú eru að hefjast framkvæmdir á lóð sjúkrahússins vegna stækkunar þess.
Það er Nýr Landspítali ohf. sem stýrir framkvæmdum við byggingu nýrrar legudeildar við sjúkrahúsið. Fyrirtækið hefur látið útbúa lítinn bækling til upplýsingar fyrir nágranna. Fram kemur í bæklingnum að lögð verði áhersla á að lágmarka áhrif framkvæmdanna á nærliggjandi íbúa og starfsemi. Framkvæmdir muni taka mið af því að viðkvæm starfsemi er á sjúkrahúsinu og að ekki megi vinna hávaðasamar framkvæmdir á borð við múrbrot og fleygun nema á virkum dögum á tímanum kl. 8-18.

Á þessari teikningu má sjá hvar nýju bílastæðin munu verða, efst til vinstri, en þar eru hafnar jarðvinnuframkvæmdir. Mynd: Nýr Landspítali ofh.
Puntkar úr bæklingnum:
- Jarðvinnuframkvæmdir við ný bílastæði milli Búðatraðar og Þórunnarstrætis eru að hefjast.
- Í framhaldi af þeim framkvæmdum verður hafist handa við jarðvinnu í grunni vegna bygginar 13.600 fermetra legudeildarbyggingar.
- Nýbyggingin tengist núverandi sjúkrahúsi og mun rúma skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur), ásamt tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu, stoðrýmum og dag- og göngudeild geðdeildar.
- Nýbyggingin verður staðsett sunnan við núverandi byggingar, og gerðar minniháttar breytingar á núverandi húsnæði vegna tengingar við nýbygginguna.
- Nýbyggingin mun taka yfir núverandi bílastæði á lóðinni og verða framtíðarbílastæði því á öðrum stað, ásamt því að þeim verður fjölgað miðað við aukið byggingarmagn á lóðinni.