Fara í efni
Skógarböðin

Körfubolti: Þór úr leik í bikarkeppninni

Jalen Green var stigahæstur Þórsara í gær með 26 stig. Baldur Örn Jóhannesson skoraði 11 stig og tók 13 fráköst. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Karlalið Þórs í körfuknattleik er úr leik í bikarkeppninni, VÍS-bikarnum, eftir tap á heimavelli fyrir úrvalsdeildarliði Sindra frá Hornafirði í gær í 16 liða úrslitum keppninnar. Lokatölur urðu 82-107.

Gestirnir frá Hornafirði byrjuðu betur, en Þórsarar voru ekki langt undan. Slakur kafli í lok fyrsta leikhluta færði þó Sindra 11 stiga forskot og það forskot jókst svo jafnt og þétt út leikinn. Þórsarar 16 stigum undir eftir fyrri hálfleikinn. Þriðji leikhlutinn var þó jafnastur, gestirnir unnu hann með einu stigi. Þeir sigldu svo sigrinum örugglega í höfn í lokafjórðungnum. Munurinn að lokum 25 stig. 

Þór - Sindri (22-33) (21-26) 43-59 (23-24) (16-24) 82-107

Jalen Green var sem fyrr mest áberandi í Þórsliðinu, skoraði 26 stig. Baldur Örn Jóhannesson náði fallegri tvennu, skoraði 11 stig og tók 13 fráköst. Af Hornfirðingum var Kaleb Higgins atkvæðamestur með 23 stig. 

Helsta tölfræði leiksins, stig/fráköst/stoðsendingar: 

Þór

Jalen Green 26/8/4, Justin Andrew 19/2/1, Baldur Örn Jóhannesson 11/13/4, Pétur Cariglia 7/2/0, Páll Nóel Hjálmarsson 6/1/3, Andri Már Jóhannesson 5/5/0, Axel Arnarsson 4/4/5, Arngrímur Friðrik Alfreðsson 2/1/0, Hjálmar Helgi Jakobsson 2/1/0, Bergvin Ingi Magnússon 0/2/1, Hlynur Ingi Finnsson 0/1/1.

Sindri

Kaleb Lamar Higgins 23/6/12, Craig Lecese 17/5/2, Martins Meiers 13/8/0, Birgir Leó Halldórsson 11/1/3, Alexander Jan Hrafnsson 9/3/2, Gísli Þórarinn Hallsson 9/2/3, Erlendur Björgvinsson 9/1/1, Magnús Dagur Svansson 5/7/2, Rami Ómar Zriouil 5/0/0, Friðrik Heiðar Vignisson 4/0/1, Hilmar Óli Jóhannsson 2/1/1.

Leikskýrsla og tölfræði

Leikir í VÍS-bikarkeppni karla

Næst:

  • Föstudagur 23. október kl. 19:15
    1. deild karla, 4. umferð
    Fjölnir - Þór