Fara í efni
Skógarböðin

Fótbolti í Boganum – blak og íshokkí syðra

Íþróttir dagsins: Fótboltaleikir heima, blak og íshokkí fyrir sunnan.

Nú sígur á seinni hlutann í Lengjubikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu. Þór og Þór/KA leika bæði heimaleiki í Boganum í dag og kvöld. Þór getur komist áfram í undanúrslit með jafntefli eða sigri gegn Val. Þór/KA verður að treysta á sigur og óvænt úrslit í öðrum leik til að fara áfram. 

Stóru tíðindi þessa þriðjudags eru þó fremur í blaki og íshokkí. Undanúrslit í Kjörísbikarkeppni kvenna í blaki fara fram í kvöld og þar eru bikarmeistarar KA í eldlínunni. Hin tíðindin eru að úrslitakeppnin í Toppdeild karla í íshokkí hefst í kvöld þegar SA Víkingar sækja lið Skautafélags Reykjavíkur heim í Laugardalinn.

Sigur eða jafntefli fleytir Þór áfram

Úrslitin í riðli Þórs í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu ráðast í dag. Fyrir lokaleikinn er Þór í efsta sætinu með sjö stig, jafn mörg stig og ÍA, en Valur er í 3. sætinu með sex stig. Þór og Valur mætast í Boganum í dag.

  • Lengjubikar karla, A-deild
    Boginn kl. 17:00
    Þór - Valur
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að stökum leikjum eða rás

Valur þarf að vinna til að ná efsta sæti riðilsins og fara í undanúrslit, en Þór fer áfram með sigri eða jafntefli. Efsta lið í hverjum riðlanna fjögurra fer í undanúrslitin, sem eru á dagskrá laugardaginn 14. mars. Úrslitaleikur mótsins er á dagskrá laugardaginn 21. mars.

Þór/KA verður að vinna og treysta á aðra

Þór/KA leikur lokaleik sinn í riðli 1 í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar FH-ingar mæta í Bogann. Þór/KA getur komið sér upp í 2. sæti riðilsins með sigri, en þó er ólíklegt að það dugi til að liðið fari áfram í undanúrslitin. Stjarnan er í efsta sæti riðilsins með tíu stig, Þróttur er með níu stig og Þór/KA getur náð níu stigum með sigri og farið upp fyrir Þrótt vegna betri markatölu. Þróttur á hins vegar eftir að sækja FHL heim í lokaleik riðilsins á laugardag og nægir jafntefli þar til að fara áfram.

  • Lengjubikar kvenna, A-deild
    Boginn kl. 19:30
    Þór/KA - FH
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að stökum leikjum eða rás

Tvö lið úr hvorum riðli fara áfram í undanúrslitin.

Titilvörn bikarmeistaranna heldur áfram

Upp er runnin bikarvika í blakinu, undanúrslitaleikir kvenna á dagskrá í kvöld og þar eru bikarmeistarar KA í eldlínunni. KA vann Þrótt Fjarðabyggð 3-1 á útivelli í átta liða úrslitunum, en mótherjarnir í kvöld, sameiginlegt lið Þróttar í Reykjavík og Blakfélags Hafnarfjarðar, vann Völsung 3-1 á heimavelli.

KA er ríkjandi bikarmeistari, liðið vann HK 3-2 í úrslitaleiknum í fyrra.

  • Kjörísbikar kvenna í blaki, undanúrslit
    Digranes í Kópavogi kl. 19:30
    Þróttur Reykjavík/Blakfélag Hafnarfjarðar - KA

Þessi lið mættust fjórum sinnum í Unbroken-deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar. KA vann tvær viðureignir 3-0 á Akureyri í september, 3-2 á útivelli í nóvember og 3-1 á útivelli í febrúar.

Hin viðureignin í undanúrslitum er á milli HK og Aftureldingar. Sigurliðin mætast í úrslitaleik í Digranesi laugardaginn 14. mars kl. 13.

Rísið Víkingar!

Úrslitakeppnin í Toppdeildunum í íshokkí eru jafnan vinsælir viðburðir þegar líður á veturinn. Nú eru það strákarnir sem hefja leik, SA Víkingar sækja lið Skautafélags Reykjavíkur heim í Laugardalinn.

  • Toppdeild karla í íshokkí
    úrslitakeppni, leikur 1
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
    SR - SA
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Fjallað er um einvígi SA og SR í sér frétt seinna í dag.