Fara í efni
Skógarböðin

Fjölbreytt fram undan á íþróttadagskránni

Ýmislegt er í boði fyrir íþróttaáhugafólk þegar líður á vikuna. Deildakeppnin í blaki er að hefjast, Þór/KA heldur áfram baráttu fyrir áframhaldandi veru í Bestu deildinni með síðasta heimaleiknum sínum á tímabilinu, karlaliðin í handboltanum snúa sér að næstu andstæðingum og karlalið SA í íshokkí spilar tvo leiki um helgina. Konurnar í íshokkíinu taka hins vegar þátt í hraðmóti í Laugardalnum.

  • Blaklið KA spiluðu bæði í leikjum um titlana meistarar meistaranna fyrir rúmri viku. KA konur unnu Íslands- og bikarmeistara HK, en KA karlar töpuðu hins vegar fyrir bikarmeisturum Hamars. Bæði KA-liðin mæta í Laugardalshöllina á fimmtudag þar sem þau sækja Þróttaara heim.
  • Þór/KA berst áfram fyrir lífi sínu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, en liðið bætti þremur dýrmætum stigum í pokann á laugardag með sigri á Val á útivelli. Á föstudag er komið að næstsíðustu umferð tímabilsins í neðri hluta deildarinnar og síðasta heimaleik Þórs/KA. Félagið hefur auglýst að frítt verði á leikinn í boði Bílaleigu Akureyrar og Grand þvottar ehf. Keppnin í neðri hlutanum er gríðarlega jöfn og spennandi; Fram með 23 stig, Þór/KA 22 stig, Víkingur 21 stig og Valur 20 stig þegar tveimur umferðum er ólokið. 
  • Eftir æsispennandi bæjarslag í liðinni viku er komið að útileik hjá báðum Akureyrarliðunum í Olísdeild karla í handboltanum. Þau eru jöfn að stigum að loknum þremur umferðum, hafa bæði unnið tvo leiki og sitja í 4. og 5. sæti deildarinnar. Þór sækir Víking heim á fimmtudag, en KA sækir Val heim að Hlíðarenda.
  • Fyrirkomulagið í Toppdeild karla í íshokkí er dálítið sérstakt, eins og rakið var í upphitun akureyri.net fyrir fyrsta leik SA Víkinga um helgina. Fjórða liðið í mótinu er skipað U20 landsliðsmönnum frá félögunum þremur, mismunandi eftir því hver andstæðingurinn er. Um helgina mæta SA Víkingar U20 liðinu tvívegis í Skautahöllinni á Akureyri. 
  • Kvennalið SA í íshokkí tekur þátt í fjögurra liða hraðmóti um komandi helgi. Mótið er samstarfsverkefni Íshokkísambands Íslands og Íshokkísambands Írlands og er hluti af verkefni sem Alþjóða íshokkísambandið, IIHF, stendur að. Verkefnið gengur út á að þjóðir sem eru hærra á heimslistanum aðstoða þær þjóðir sem eru neðar eða jafnvel ekki á heimslistanum, eins og í tilfelli Írlands. Að sögn Helga Páls Þórissonar, forseta ÍHÍ, hafa þessi sérsambönd lengi ætlað sér að gera eitthvað saman og segir hann þetta mót viðleitni til þess. Ef vel tekst til má jafnvel búast við því að það verði endurtekið að ári. Þátttakendur í mótinu eru íslensku félagsliðin, SA, SR og Fjölnir, ásamt írska landsliðinu. Leikið er á föstudag, laugardag og sunnudag í Skautahöllinni í Laugardal.

FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER - blak

Laugardalshöllin er vettvangur fyrstu leikja beggja liða KA í Unbroken-deildunum í blaki. KA-liðin sækja Þróttara heim á fimmtudag.

  • Blak
    Unbroken-deild karla
    Laugardalshöllin kl. 18
    Þróttur R. - KA

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    Laugardalshöllin kl. 20
    Þróttur R. - KA

FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER - fótbolti, handbolti, íshokkí

Frítt inn, auglýsir stjórn Þórs/KA fyrir leik dagsins í fótboltanum. Þrjú mikilvæg stig í boði í neðri hluta Bestu deildarinnar, síðasti heimaleikur liðsins á þessu tímabili þegar Þór/KA tekur á móti Fram.

  • Fótbolti
    Besta deild kvenna, neðri hluti
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn á Ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Fram

Handboltinn heldur áfram eftir bæjarslaginn, útileikur hjá báðum Akureyrarliðunum í Olísdeild karla.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 4. umferð
    Virkið í Safamýri kl. 19
    Víkingur - Þór

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 4. umferð
    N1 höllin að Hlíðarenda kl. 19:30
    Valur - KA

Atlantic Cup, fjögurra liða íshokkímót kvenna, hefst í kvöld með þátttöku SA, SR, Fjölnis og írsla landsliðsins. SA mætir SR í kvöld. Hinn leikur föstudagsins er viðureign Fjölnis og írska landsliðsins sem hefst kl. 18:45.

  • Íshokkí
    Atlantic Cup, 1. umferð
    Skautahöllin í Laugardal kl. 21:00
    SA - SR

LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER - íshokkí

Tveir hokkíleikir í boði í Skautahöllinni á Akureyri um helgina, SA Víkingar gegn U20 liðinu sem er fjórða lið Toppdeildarinnar.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    U20 - SA

Önnur umferð Atlantic Cup. Hinn leikur dagsins er viðureign SR og írska landsliðsins sem hefst kl. 20.

  • Íshokkí
    Atlantic Cup, 2. umferð
    Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
    Fjölnir - SA

SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER - íshokkí

Seinni leikur SA Víkinga og U20 liðsins í Toppdeild karla í íshokkí á dagskrá síðdegis.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - U20

Lokaumferð Atlantic Cup. Hinn leikur dagsins er viðureign Reykjavíkurliðanna, Fjölnis og SR, sem hefst kl. 20.

  • Íshokkí
    Atlantic Cup, 3. umferð
    Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
    SA - Írland