Fara í efni
Skipulagsmál

Sigþóra Brynja og Arnar Íslandsmeistarar

Arnar Pétursson úr Breiðabliki og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir eru Íslandsmeistarar í víðavangshlaupi. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) varð í morgun Íslandsmeistari í víðavangshlaupi kvenna. Sigþóra hljóp tíu kílómetrana á 43:56 mínútum. Keppendur úr UFA hirtu reyndar öll verðlaunin í kvennaflokknum því Rannveig Oddsdóttir kom önnur í mark rúmri mínútu á eftir Sigþóru og Hafdís Sigurðardóttir nokkuð á eftir henni í þriðja sætinu.

Þrefaldur UFA sigur í kvennaflokki. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttier er Íslandsmeistari, Rannveig Oddsdóttir (1521) varð önnur og Hafdís Sigurðardóttir, betur þekkt fyrir afrek sín á reiðhjólum (1519) varð þriðja. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Arnar Pétursson úr Breiðabliki er Íslandsmeistari í víðavangshlaupi karla. Hann hljóð tíu kílómetrana í Kjarnaskógi í morgun á 35:06 mínútum og vann hlaupið örugglega. Rúmri hálfri mínútu á eftir honum kom Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA í öðru sæti og nokkru þar á eftir Halldór Hermann Jónsson, einnig úr UFA, í þriðja sætinu.

Úrslitin í 10 km víðavangshlaupinu má finna á vefnum timataka.net. Einnig er hægt að sjá úrslit í hverjum flokki fyrir sig með því að smella á viðkomandi flokka hér að neðan.

  • Konur - 10 km: Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir (UFA) - 43:56 ínútur
  • Karlar - 10 km: Arnar Pétursson (Breiðabliki) - 35:06 mínútur

Uppfært: Þegar fréttin var skrifuð upphaflega voru rangar upplýsingar um röðun í sæti á tímatökuvefnum. Textinn hér á eftir og úrslit í kvennaflokki, 5 km, hafa verið uppfærð í samræmi við leiðréttar upplýsingar.

Rannveig Oddsdóttir úr UFA varð Íslandsmeistari kvenna í 5 km og Björn Margeirsson í karlaflokki. Elma Eysteinsdóttir, einnig úr UFA, varð önnur, tæplega einni og hálfri mínútu á eftir Rannveigu, og Rakel Ingólfsdóttir úr Ármanni þriðja. Rannveig lét sér sigurinn í 5 km ekki nægja heldur vann hún til silfurverðlauna í tíu kílometrunum stuttu síðar. Ræst var í fimm kílómetrana kl. 10 og tíu kílómetrana kl. 11:45. Í karlaflokknum komu tveir keppendur úr UFA í verðlaunasætum á eftir Birni, Davíð Jónsson úr varð annar og Stefán Garðarsson þriðji. 

Sigurvegarar í einstökum flokkum

Einnig er hægt að sjá úrslit í öllum eldri aldursflokkum frá 40 ára og upp úr, þar sem keppt var um Íslandsmeistaratitla, á vefnum timataka.net. Þar er einnig að finna úrslit í almennum flokknum þar sem allir gátu tekið þátt óháð félagsaðild. 

Þorgeir Baldursson kíkti við í Kjarnaskógi í morgun og festi nokkra hlaupara á filmu.