Fara í efni
Skipulagsmál

„Nú geta akureyrskir ökuþórar andað léttar“

Aðalsteinn Svan Hjelm í Oddeyrargötunni í febrúar 2023. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

„Wúhú! Nú geta akureyrskir ökuþórar andað léttar. Bráðabirgðahraðahindranirnar sem settar voru upp í sumar í Oddeyrargötu hafa verið fjarlægðar og umferðin farin að láta á sér kræla á ný.“ Þannig hefst pistill sem Aðalsteinn Svan Hjelm, áhugamaður um umferðaröryggi með meiru, birti á Facebook-síðu sinni í dag. 

Aðalsteinn hefur um árabil barist fyrir auknu umferðaröryggi í Oddeyrargötunni, og reyndar á Akureyri almennt því hann hefur á undanförnum árum varið ómældum tíma og fyrirhöfn í baráttu fyrir því að Akureyrarbær léti útbúa umferðaröryggisáætlun, sem tókst að lokum. 

Hraðinn um og yfir 80 í þröngri íbúðagötu

En að pistli Aðalsteins í dag þar sem hann vekur athygli á þeirri breytingu sem orðið hefur í götunni eftir að hraðahindranir voru fjarlægðar. „Af hraðanum að dæma hafa margir tekið þessum breytingum fagnandi enda virðist fátt trekkja meira að en tækifæri til að stytta sér leið á milli stofnbrauta í gegnum þrönga íbúðagötu þar sem engar fyrirstöður eru fyrir hendi, nema kannski einstaka íbúi og jafnvel barn.“

Í Oddeyrargötunni. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Hann bendir á að nú taki við áttundi veturinn í röð hjá honum þar sem „við leggjum allt okkar púður í að reyna að koma vitinu fyrir Akureyrarbæ í þeirri vitðleitni að bjarga mannslífum, að hér um íbúagötuna okkar þröngu, þar sem gangstétt er aðeins öðru megin, séu ökumenn að mælast á um og yfir 80 km/klst af því að þeir geta það. Þetta ástand er að sjálfsögðu ekki boðlegt en því miður ekki öllum gefið að skilja eins og verkin sýna hér.“
 
Sláandi niðurstöður hraðamælinga
 
„Lausnin sem við höfum lagt til er ótrúlega einföld, tvær varanlegar hraðahindranir í efri hluta Oddeyrargötu og með því eru um 70 m á milli hraðatakmarkandi aðgerða líkt og Umferðaröryggisáætlun, sem við komum í gegn á sínum tíma, kveður skýrt um. Núna er hér 300 metra flugbraut sem allir sem vilja geta reynt á fákana sína, hvað þeir komast hratt yfir og það gera þeir óspart,“ skrifar Aðalsteinn í pistlinum.
 
Hann bendir á að fyrr á þessu ári hafi íbúarnir fengið Akureyrarbæ til að framkvæma hraðamælingar í götunni, en þær hafi þó að vísu verið gerðar við ómarktækar aðstæður þar sem slabb hafi verið í götunni og rökkur stóran hluta tímans vegna veðurs. En niðurstöðurnar sem hann birtir eru engu að síður sláandi, bæði umferðarþunginn og -hraðinn. 
 
 
Hámarkshraði í Oddeyrargötunni er 30 km/klst. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Helstu niðurstöðurnar eru þessar:
 
  • Yfir 10.000 ökutæki óku um Oddeyrargötu á einni viku.
  • Um 60% ökumanna óku yfir hámarkshraða.
  • Tæplega 1.000 ökutæki fóru yfir 40 km/klst.
  • Þeir sem hraðast óku voru mældir á yfir 70 km/klst.
„Þetta er því ekki spurning um tilfinningar eða upplifun íbúa. Hér tala staðreyndirnar líkt og við höfum alltaf stutt okkur við. Spurning hvort þið mynduð sætta ykkur við þessar tölur ef um ykkar götu væri að ræða? Og nú er stóra spurningin til nýja meirihlutans: Eruð þið sami grauturinn í sömu skálinni eða megum við eiga von á nútímalegri vinnubrögðum, lausnamiðaðri hugsun og jafnvel aðgerðum?“ spyr Aðalsteinn og endar pistilinn á: „Akureyrarbær, yfir til ykkar!“
 
Enginn veit hvað skiltið þýðir
 
Gatnamót Oddeyrargötu og Brekkugötu tóku stakkaskiptum í júlí 2024 með rauðmálaðri upphækun sem á að vera til marks um það að þar njóti vélknúin ökutæki ekki forgangs umfram aðra umferðarmáta, en í athugasemd undir eigin færslu í dag birtir Aðalsteinn skilti (sjá mynd) og segir það sína skynjun að nákvæmlega enginn Akureyringur viti hvað þetta skilti þýðir. Þar vísar hann til göngugötunnar í miðbænum, sem er vistgata. „Mín skynjun verandi mikið hér í miðbænum (og sem Hafnfirðingur þar sem líkegast elsta vistgata landsins liggur) er að nákvæmlega enginn Akureyringur veit hvað þetta skilti þýðir,“ skrifar hann í athugasemdinni. 
 
 
Frá vinnu við gatnamót Oddeyrargötu og Brekkugötu í júlí 2024. Vonandi verður næsti rauði litur ekki blóð barns sem ekið hefur verið á í götunni. Mynd: akureyri.is.

Íbúar hafa einnig gagnrýnt aðferðafræðina við götulokanir þegar mikið er um að vera í miðbænum, til dæmis um verslunarmannahelgina og aðrar slíkar helgar þar sem lokun efst í gilinu verður til þess að umferðarálag um þröngar íbúagötur eins og Oddeyrargötuna, Krabbastíg og Hamarstíg eykst til muna, í stað þess að ökumenn fari um stofnbrautir eins og Þórunnarstrætið. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, íbúi við götuna, vakti athygli á þessu um verslunarmannahelgina 2024, eins og akureyri.net fjallaði um í frétt 7. ágúst sama ár.

Skjástkot úr myndböndum sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson birti á Facebook kl. 17:43 föstudaginn 2. ágúst. Bíll við bíl eftir Oddeyrargötunni. 

Spurður um umferðarþungann í Oddeyrargötunni fyrir og eftir flutning Vínbúðarinnar úr miðbænum segir Aðalsteinn hann hafa minnkað eitthvað, en hraðann ekki. Brotthvarf heilsugæslunnar hafi einnig haft áhrif á umferðarþungann, en nú sé komin ný áfengisverslun á staðinn og líklega hafi bæst aftur í umferðina.

Áratuga barátta íbúa við Oddeyrargötuna

Barátta íbúa við Oddeyrargötuna hefur reyndar staðið mun lengur og byrjaði áratugum áður en Aðalsteinn flutti í götuna.

Í febrúar 2023 átti tíðindamaður frá akureyri.net viðtal við Aðalstein sem birt var í þremur hlutum, sá fyrsti undir yfirskriftinni „Ég ætla að bjarga þessu mannslífi,“ þar sem hann, spurður hvort ekkert myndi gerast fyrr en þarna yrði alvarlegt slys, vísaði til þess að framkvæmdir séu í raun reaktívar þar sem brugðist sé við eftir á þegar eitthvað er búið að koma fyrir, í stað þess að nota próaktívar aðgerðir sem fyrirbyggja eitthvað sem við vitum að er líklegt að gerist. Þremur árum áður munaði minnstu að keyrt yrði á son hans sem þá var að ganga út frá heimili þeirra við Oddeyrargötuna, á milli bíla á bílastæðinu – því það er enginn gangstétt þeim megin við götuna. Hliðarspegill bílsins straukst við nef drengsins.

Fyrri umfjöllun og viðtöl við Aðalstein um ástandið í Oddeyrargötunni, umferðaröryggisáætlun og hugmyndafræði: