Fara í efni
Skipulagsmál

Lúxustjöld nýjasta nýtt á Hömrum

Á næsta ári verður hægt að bóka uppbúin rúm í tjöldum á Hömrum. Nýjungin er m.a. hugsuð sem möguleiki til að draga úr árstíðarsveiflum á tjaldsvæðinu.

Hamrar, útilífsmiðstöð skáta á Akureyri, hefur fest kaup á tólf lúxustjöldum. Áformað er að koma hluta þeirra upp á Hömrum á næsta ári og bjóða gestum upp á fullbúna lúxusgistingu í tjöldum.

Tjöldin voru keypt notuð af aðstandendum Almyrkvahátíðarinnar á Hellissandi en að hátíðinni lokinni var allur búnaður hátíðarinnar boðinn til sölu. „Við keyptum tólf tjöld, sex af hvorri gerð,“ segir Ásgeir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Hamra. Samhliða tjöldunum var einnig keyptur búnaður á borð við dýnur, borð og rúmföt svo hægt verði að bjóða gestum upp á fullbúna gistingu.

Ýmsar útfærslur á svokallaðri „glamping“-gistingu hafi orðið vinsælar á síðustu árum, meðal annars gegnsæjar gistihvelfingar. Hamrar hafi viljað byrja á einhverju einfaldara sem auðvelt væri að prófa án þess að ráðast strax í umfangsmikla uppbyggingu.

Útilegutilfinning með þægindum

Ekki hefur verið ákveðið hversu mörg tjöld verða sett upp á Hömrum né hvar þeim verður nákvæmlega komið fyrir. Ásgeir segir næsta skref vera að finna þeim hentugan stað og undirbúa svæðið en stefnt er að því að prófa þennan gistimöguleika næsta sumar. „Það eru alltaf einhverjir sem spyrja um þennan möguleika og við erum stöðugt að leita leiða til að fjölga því sem við getum boðið upp á,“ segir Ásgeir og bætir við að hugmyndin á bak við lúxustjöldin sé meðal annars sú að gestir geti bókað uppábúið tjald fyrir tvo og fengið þannig útileguupplifun án þess að þurfa að ferðast með allan búnaðinn sjálfir.

Ásgeir segir kaupin vera lið í því að þróa starfsemina á Hömrum enn frekar og draga úr árstíðasveiflum. Tjaldsvæðið á Hömrum er opið allt árið en töluvert róast yfir starfseminni þegar líður á haustið. Lúxustjöldin gætu skapað tækifæri til að teygja gistitímabilið lengra fram á haust og bjóða fólki upp á gistingu sem sameinar ákveðin þægindi og útilegutilfinningu. „Okkur langaði að finna eitthvað sem við réðum við. Þetta er tiltölulega ódýr leið til að prófa og sjá hvernig fólk tekur í þetta,“ segir Ásgeir og bætir við að ýmsar útfærslur á svokallaðri „glamping“-gistingu hafi orðið vinsælar á síðustu árum, meðal annars gegnsæjar gistihvelfingar. Hamrar hafi viljað byrja á einhverju einfaldara sem auðvelt væri að prófa án þess að ráðast strax í umfangsmikla uppbyggingu.

Uppábúin gisting í tjaldi.  Tjaldsvæðið á Hömrum mun bjóða upp á þessa nýjung á næsta ári. 

Nýtast líka fyrir skólahópa

Þá verða tjöldin ekki eingöngu hugsuð fyrir einstaklinga og pör. Stærri tjöldin eru um fimm metrar í þvermál og segir Ásgeir að hægt sé að koma sex til tíu manns fyrir í þeim. Þau gætu því einnig nýst skólahópum og skátahópum sem á Hamra koma. Ásgeir segir áhuga á að efla slíka gistingu, meðal annars fyrir innlenda skólahópa sem leita að gistingu í tvær eða þrjár nætur. Þá geti tjöldin nýst í skátastarfinu sjálfu, til dæmis fyrir yngri krakka sem vilja prófa útilegu og kynnast henni áður en haldið er í lengri ferðir eða stærri mót.

Ásgeir við hluta tjaldanna sem voru lögð til þerris í hlöðunni eftir skátaútilegu um helgina. 

Spennandi möguleikar í lúxustjöldum

Sumarið á Hömrum gekk annars ágætlega að sögn Ásgeirs. Gestir á tjaldsvæðinu voru heldur færri en í fyrra, en landsmót skáta setti mikinn svip á sumarið og einnig var mikið um að vera á svæðinu um verslunarmannahelgina. Þá hafa miklar vegaframkvæmdir verið í gangi á svæðinu og eins var móttakan flutt yfir í nýtt gámahús um verslunarmannahelgina sem gjörbreytir allri þjónustu við gesti.

Næsta sumar bætast lúxustjöldin svo við framboðið og verður þá látið reyna á það hvort gestir Hamra séu tilbúnir að skipta hefðbundna tjaldinu út fyrir uppábúið tjald. Ásgeir sér einnig fyrir sér að lúxustjöldin geti í framtíðinni orðið hluti af fjölbreyttara útivistarframboði á Hömrum. Hann nefnir gönguskíði sem dæmi um útivist sem hefur vaxið mikið að vinsældum. Í framtíðinni væri hægt að tengja saman gistingu og skipulagða útivist, til dæmis með því að bjóða fólki gistingu í fullbúnu tjaldi samhliða gönguskíðanámskeiði. Gestir fengju þá útilegutilfinninguna en hefðu um leið aðgang að salernum og annarri þjónustu á svæðinu. „Mér finnst þetta a.m.k. spennandi möguleiki sem gaman væri að fara lengra með,“ segir Ásgeir.