Skipulagsmál
L-listinn birtir allan framboðslistann
12.03.2026 kl. 12:30
Sex efstu á L-listanum, frá vinstri: Andri Teitsson (5.), Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir (2.) Óðinn Svan Óðinsson (1.), María Pálsdóttir (4.), Preben Jón Pétursson (3.) og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir (6.) Mynd: L-listinn.
L-listinn kynnti í hádeginu allan framboðslistann fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í vor. Greint hafði verið frá því að Óðinn Svan Óðinsson fjölmiðlamaður yrði í 1. sæti en nú er komið í ljós að Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi og lífeindafræðingur verður í 2. sæti og Preben Jón Pétursson mjólkurtæknifræðingur í 3. sæti.
L-listinn var sigurvegari kosninganna fyrir fjórum árum, fékk þrjá bæjarfulltrúa og er í meirihluta ásamt Sjálfstæðisflokki og Miðflokki.
María Pálsdóttir leikkona og frumkvöðull verður í 4. sæti listans, Andri Teitsson bæjarfulltrúi og verkfræðingur í 5. sæti og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir kennari og rithöfundur verður í 6. sæti.
Framboðslistinn í heild er sem hér segir:
1. Óðinn Svan Óðinsson - fjölmiðlamaður
2. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir – bæjarfulltrúi / lífeindafræðingur
3. Preben Jón Pétursson – mjólkurtæknifræðingur
4. María Pálsdóttir – leikkona / frumkvöðull
5. Andri Teitsson – bæjarfulltrúi / verkfræðingur
6. Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir – kennari / rithöfundur
7. Geir Kristinn Aðalsteinsson – mannauðsstjóri
8. Paula Del Olmo – þjálfari / verkefnastjóri
9. Jón Þorvaldur Heiðarsson – lektor við HA
10. Guðríður Sveinsdóttir – kennari
11. Árni Óðinsson – rafvirki / tæknimaður
12. Maríanna Margeirsdóttir - viðskiptafræðingur
13. Kristján Valur Kristjánsson - rafvirki
14. Anna Hildur Guðmundsdóttir – formaður SÁÁ
15. Kristján Sigurólason - atvinnurekandi
16. Guðrún Karitas Garðarsdóttir - viðskiptafræðingur
17. Aðalgeir Axelsson - kaupmaður
18. Ólöf Inga Andrésdóttir – skólastjóri
19. Arnar Már Bjarnason – deildarstjóri forvarna- og frístundamála
20. Anna Fanney Stefánsdóttir - sjúkraliði
21. Víðir Benediktsson – skipstjóri
22. Oddur Helgi Halldórsson – blikksmíðameistari / iðnrekstrarfræðingur