Fara í efni
Skipulagsmál

Kynningarfundur vegna Blöndulínu 3

Mynd: Þorgeir Baldursson

Kynningarfundur um breytingu á aðalskipulagi vegna Blöndulínu 3 fer fram í Síðuskóla mánudaginn 20. apríl og hefst kl. 17. Breytingin varðar legu og útfærslu Blöndulínu 3 og annarra háspennulína frá Rangárvöllum og að sveitarfélagamörkum við Hörgársveit.

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi í janúar sl. að auglýsa þessa breytingu á aðalskipulagi. Meðal annars er skilgreind í tillögunni tímabundin heimild fyrir 220 kV loftlínur næst byggðinni þar sem framtíðarlausn flutningskerfis raforku á þessum kafla er að hafa háspennulínur í jörðu til samræmis við stefnu stjórnvalda þar um. Í skipulagstillögunni kemur fram að uppfylla þurfi ákveðnar tæknilegar forsendur áður en Blöndulína 3 verði að lokum lögð í jörð.

Í frétt á vefsíðu Akureyrarbæjar er hlekkur á skipulagsuppdráttinn.

Frestur til að gera athugasemd við breytinguna á aðalskipulaginu er til 23. apríl næstkomandi. Athugasemdum er skilað inn hér á Skipulagsgáttinni.

Gildandi aðalskipulag er vinstra megin og tillaga að breyttu skipulagi hægra megin. Skjáskot úr skipulagsuppdrætti.