Skipulagsmál
Fyrsta barnið skírt í nýrri Miðgarðakirkju
06.03.2026 kl. 17:45
Agnes Dís Ragnarsdóttir er fyrsta barnið sem er skírt í nýrri Miðgarðakirkju í Grímsey. Mynd: akureyri.is
Þann 22. febrúar síðastliðinn var fyrsta barnið skírt í nýju Miðgarðakirkjunni í Grímsey en kirkjan var vígð í ágúst á síðasta ári. Agnes Dís Ragnarsdóttir heitir stúlkan og er ekki óvön því að vera frumkvöðull, því hún var líka fyrsta barnið sem fæddist á Norðurlandi á þessu ári.
Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, annaðist athöfnina í blíðskaparveðri, að því er kemur fram á grimsey.is. Agnes Dís er búsett í Grímsey ásamt foreldrum sínum, Brá Svafarsdóttur og Ragnari Árnasyni. Brá er fædd og uppalin í Grímsey en Ragnar er Dalvíkingur og er Agnes Dís fyrsta barn þeirra.