Fótboltinn verður í öndvegi næstu daga
Linnulítið fjör var á knattspyrnuvöllum á KA-svæðinu og á gamla Akureyrarvellinum við Hólabraut í gær, á fyrsta degi N1 móts KA fyrir 5. flokk stráka. Þar reyna 11 og 12 ára drengir með sér, alls hátt í 1800 leikmenn frá um 40 félögum víðs vegar af landinu.
N1 mótið er eitt allra fjölmennasta íþróttamót hvers árs hér á landi og fer nú fram í 40. skipti. Flautað var til fyrstu leikja klukkan 12 á hádegi og síðustu leikjum dagsins lauk kl. 21.30. Byrjað verður að sparka á ný kl. 8.30 í dag og keppt til 21.00. Áfram heldur fjörið á morgun og strákarnir linna raunar ekki látum fyrr en síðdegis á laugardag þegar úrslitaleikir eru á dagskrá.
Óhætt er að segja að fótbolti verði í hávegum hafður á Akureyri næstu daga vegna þess að á morgun hefst árlegt Pollamót Þórs og Samskipa þar sem eldri – eða heldri – kynslóðir spreyta sig. Mót Þórsara stendur í tvo daga, föstudag og laugardag.

Fjölnismaður lætur vaða að marki Hvatar í gær.