Sjúkrahúsið á Akureyri
Heilsuvernd mun reka hjúkrunarheimilið
20.08.2026 kl. 20:30
Fyrirhugað hjúkrunarheimili við Þursaholt. Mynd sem Reitir birtu fyrr í sumar.
Fyrirtækið Heilsuvernd Hjúkrunarheimili mun reka nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri þegar þar að kemur. Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, segir akureyri.net að það hafi verið formlega afgreitt á fundi með Sjúkratryggingum Íslands í dag. Heilsuvernd rekur nú þegar bæði hjúkrunarheimilin í bænum, Hlíð og Lögmannshlíð, fyrir Sjúkratryggingar.
Á nýja heimilinu verða 140 hjúkrunarrými. Fyrr í sumar var tilkynnt að Framkvæmdasýsla - Ríkiseignir hefðu samið við fasteignafélagið Reiti um uppbyggingu hússins og leigu til 25 ára.
Teitur segir niðurstöðuna í dag mikil tímamót og nú fari í hönd samstarf við Framkvæmdasýsluna og Reiti um hönnun og uppbyggingu húsnæðisins. „Framundan er því mikil uppbygging þjónustu fyrir aldraða á Akureyri. Við hlökkum mjög til þessa verkefnis sem mun bæta verulega aðstöðu okkar og möguleika til þjónustu við okkar besta fólk,“ segir hann.