Fara í efni
Samherji

Mikill áhugi á búnaði og þjónustu Slippsins DNG

Frá bás Slippsins DNG á sjávarútvegssýningunni í Barcelona. Mynd af vef fyrirtækisins.

Gestir á sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global í Barcelona hafa sýnt búnaði og þjónustu akureyrska fyrirtækisins Slippsins DNG mikinn áhuga að því er fram kemur í frétt á vef fyrirtækisins

Slippurinn DNG er á meðal fjölmargra fyrirtækja frá um 90 þjóðlöndum sem kynna vörur sínar, tæki og þjónustu á þessari stæarstu sýningu sinnar tegundar sem nú stendur yfir í Barcelona. Sýningin hófst í gær og stendur í þrjá daga. 

Góður straumur gesta hefur verið í bás Slippsins DNG á sýningunni. Þar kynnir fyrirtækið lausnir sínar í samstarfi við Optimar, allt frá stökum búnaði upp í fullbúnar vinnslulínur, ásamt þjónustu fyrir skipaflota. Gestir hafa sýnt búnaði og þjónustu fyrirtækisins mikinn áhuga. 

„Það er ánægjulegt að finna fyrir þessum áhuga. Við höfum átt góð samtöl og sjáum að lausnirnar okkar mæta þörfum markaðarins,“ segir Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Slippsins á Akureyri, í samtali á vef fyrirtækisins.