Samherji
Jakob Snær framlengir hjá KA út sumarið 2029
27.09.2026 kl. 09:00
Jakob Snær í leik með KA gegn Þór fyrr í mánuðinum. Mynd: Ármann Hinrik.
Jakob Snær Árnason hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnudeild KA sem gildir út sumarið 2029. „Eru þetta ákaflega góðar fréttir enda hefur Jakob verið frábær fyrir KA frá komu sinni í félagið sumarið 2021,“ segir í tilkynningu á vef félgsins.
Jakob er 29 ára gamall Siglfirðingur og kom til KA sumarið 2021 frá Þór. Hann varð fyrir meiðslum skömmu fyrir Evrópuleiki KA gegn Silkeborg í fyrrasumar og missti af síðari hluta tímabilsins, en hefur komið við sögu í 18 af 24 leikjum liðsins í Bestu deildinni í sumar. Jakob Snær hefur spilað samanlagt 127 leiki fyrir KA, þar af 96 í Bestu deildinni, 14 bikarleiki, sex Evrópuleiki, einn í Meistarakeppni KSÍ og tíu í Lengjubikarnum.
Nánar er fjallað um Jakob Snæ á vefsíðu KA.
