Fara í efni
Risakýrin Edda

Sárgrætilegt tap fyrir toppliði Þróttar

Sandra María Jessen og samherjar hennar í liði Þórs/KA urðu að bíta í það súra epli að tapa fyrir Þrótturum í Reykjavík í gær. Mynd: Ármann Hinrik

Heppnin var sannarlega ekki með Þór/KA í gær þegar liðið sótti Þrótt heim í Bestu deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þróttarar unnu 2:0 í Laugardalnum og eru því áfram efstir; eru með 22 stig að loknum átta umferðum, Breiðablik og FH eru með 19 stig og Þór/KA með 15.

Þór/KA lék vel í gær, fékk nokkur prýðileg færi til að skora en það var ekki síst sakir frábærrar frammistöðu markvarðar Þróttar, Mollee Swift, að heimaliðið fékk ekki á sig mark.

Fyrri hálfleikurinn var jafn en Þróttarar höfðu eins marks forystu að honum loknum. María Eva Eyjólfsdóttir skoraði þegar sex mínútur voru eftir en það var sorglegt að markið skyldi skráð því María Eva lagði boltann fyrir sig með hendinni áður en hún sendi hann í markið.

Það sást greinilega í sjónvarpinu hvað gerðist – í endursýningu, vel að merkja – en þröng var á þingi í vítateignum og dómaranum stendur því miður ekki til boða sama sjónarhorn og sjónvarpsáhorfendum.

Þetta var eftir horn, Caroline Murray fékk boltann úti á kanti og sendi fyrir, Jessica Berlin markmaður Þórs/KA gerði misheppnaða tilraun til þess að góma knöttinn, sem datt fyrir fætur Maríu Evu á markteignum.

Aðeins einni mínútu eftir að Þróttur náði forystu komst Sandra María Jessen framhjá markverði Þróttar, eftir langa sendingu fram, en varnarmaður komst fyrir skot hennar á síðustu stundu.

Seinna mark Þróttar kom þegar korter var liðið af seinni hálfleik. Freyja Karín Þorvarðardóttir fékk þá boltann langt úti á velli, hljóp alla leið inn í vítateig þar sem hún lét vaða á markið, boltinn fór beint á Jessicu markvörð en endaði þó á illskiljanlegan hátt í netinu. Ekki virtist mikil hætta á ferðum en Jessica missti boltann.

Þrátt fyrir erfiða stöðu köstuðu leikmenn Þórs/KA að sjálfsögðu ekki inn handklæðinu heldur gerðu hvað þeir gátu til að skora en besti maður Þróttar, markvörðurinn Mollee Swift, kom í þrígang í veg fyrir að það tækist með mjög góðri markvörslu.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

  • Næsti leikur Þórs/KA er í átta liða úrslitum bikarkeppninnar á fimmtudaginn kl. 17:30. Þá koma FH-ingar í heimsókn í Bogann.
  • Tvær umferðir eru eftir í Bestu deildinni þar til gert verður hlé í rúmlega mánuð vegna Evrópukeppni landslið. Báðir leikir Þórs/KA verða á heimavelli:
  • Breiðablik kemur í heimsókn í Bogann 16. júní kl. 17:00 og Víkingur laugardaginn 21. júní kl. 17:00.