Fara í efni
Risakýrin Edda

Evrópuleikur KA á Greifavellinum

Mynd af heimasíðu KA

KA hefur fengið grænt ljós frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, á að heimaleikur félagsins í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu í sumar fari fram á Greifavellinum á svæði félagsins. Þegar KA lék í sömu keppni fyrir tveimur árum fóru heimaleikirnir fram á heimavelli Fram í Reykjavík og á Laugardalsvellinum.

„Þetta er risaskref fyrir félagið og samfélagið allt á Akureyri. Við erum gríðarlega stolt af þeirri viðurkenningu sem felst í því að fá að spila fyrsta heimaleik okkar í Evrópu á Greifavellinum – þrátt fyrir að vera í miðri framkvæmd. Þetta sýnir að framtíðarsýn KA og Akureyrarbæjar nýtur virðingar og trausts í hinu metnaðarfulla alþjóðlega knattspyrnuumhverfi,“ segir Hjörvar Maronsson formaður knattspyrnudeildar KA á heimasíðu félagsins í dag.

„Gríðarleg vinna“

UEFA veitti KA sérstaka undanþágu til þess að leika í fyrstu tveimur umferðum Sambandsdeildarinnar á félagssvæðinu, að því er segir á vef KA. Liðið situr reyndar hjá í 1. umferð en ljóst er að í 2. umferð leika KA-menn á eigin velli.

„Ein ástæða undanþágunnar er hin metnaðarfulla og öfluga uppbygging á KA-svæðinu, þar sem nú er unnið hörðum höndum að því að skapa fyrsta flokks aðstöðu sem uppfyllir alla alþjóðlega staðla. Þegar framkvæmdum lýkur mun KA búa yfir glæsilegum og fullbúnum heimavelli sem verður verðugur vettvangur fyrir framtíðarfótbolta á alþjóðlegu sviði,“ segir á vef KA í dag. „Í sumar hafa sjálfboðaliðar á vegum KA unnið hörðum höndum að gera Greifavöllinn hæfan til þess að fá náð fyrir augum UEFA og tókst það eftir gríðarlega vinnu sem lögð var í völlinn og umhverfi hans. KA vill sérstaklega þakka sjálfboðaliðunum fyrir það grettistak sem þeir hafa lyft í gerð vallarins, alveg frá fyrsta degi.“

Dregið á morgun

Dregið verður til 2. umferðar umferð Sambandsdeildarinnar í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss á morgun 18. júní. Leikir 2.  umferðar fara fram dagana 24. og 31. júlí næstkomandi. „Auk þess að vita hver andstæðingur okkar verður þá kemur í ljós þegar dregið er hvort við munum spila fyrri eða síðari leikinn á heimavelli. Það er þó ljóst að hér verður brotið blað í sögu félagsins en þetta verður í fyrsta skiptið sem Evrópuleikur í knattspyrnu fer fram á KA-svæðinu. KA lék Evrópuleiki sína árið 1990 og 2003 á Akureyrarvelli og svo eins og kom fram á Framvelli og Laugardalsvelli sumarið 2023.“