Í dag: Frjálsar, golf, sandspyrna og hávaði
Frjálsar íþróttir, golf, sandspyrna og hávaðakeppni eru á dagskrá dagsins. Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum hefst á Þórsvellinum í dag, Íslandsmót í hjólreiðum hófst í gær með keppni í tímatöku í Eyjafjarðarsveit, Arctic Open miðnæturgolfmótið heldur áfram og á Bíladögum er boðið upp á sandspyrnu og hávaðakeppni.
Frjálsíþróttamót á Þórsvelli
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára hefst á Þórsvellinum kl. 17 í dag að því er ráða má af tímaseðli mótsins sem finna má á vef Frjálsíþróttasambandsins. Í dag er á dagskrá keppni í stangarstökki, sleggjukasti og 200 metra hlaupi.
- Dagskrá mótsins á mótavef FRÍ - sjá hér.
Miðnæturgolfið heldur áfram
Áfram er haldið með keppni á Arctic Open miðnæturgolfmóti Golfklúbbs Akureyrar. Þar er keppt í opnum flokki, með og án forgjafar, en mótið er þekkt og vinsælt fyrir miðnæturgolf. Spilaðar eru 18 holur hvorn keppnisdag. Upplýsingar um mótið má finna á mótssíðunni á vef Golfklúbbs Akureyrar.
- Föstudagur 19. júní
Ræst út kl. 10
Sandspyrna og hávaði á Bíladögum
Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir hinum árlegu Bíladögum. Keppnisgreinar dagsins eru sandspyrna og hávaðakeppni.
- Föstudagur 19. júní
Sandspyrna kl. 11:00-15:45
Hávaðakeppni kl. 21 - Dagskrá og upplýsingar um Bíladaga má finna á vef Bílaklúbbs Akureyrar og Facebook-síðu Bíladaga.
Siðareglur Bíladaga:
- Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
- Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
- Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
- Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.