Hafdís meistari í 5. sinn í röð – MYNDIR
Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar (HFA) varð í gær Íslandsmeistari í tímatöku í hjólreiðum í fimmta sinn í röð. Keppnin fór fram í Eyjafjarðarsveit, upphaf og endir var við Botnsreit.
Hafdís hefur í mörg ár verið fremsta hjólreiðakona landsins og unnið fjölmarga titla. Hún getur enn bætt í safnið um helgina því keppt verður í götuhjólreiðum í Svarfaðardal á morgun, laugardag, og í criterium á Akureyri á sunnudag. Auk Hafdísar keppti Silja Jóhannesdóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar í A-flokki kvenna og endaði í 4. sæti. Þess má geta að sonur Hafdísar, Aron Breki Haraldsson, vann U11 flokkinn, og dóttir Silju, Júlía Björg Jóhannsdóttir, vann U13 flokkinn.
Hafdís hjólaði brautina á 44:48,80 mínútum, sem er 56 sekúndum betri tími en hjá næsta keppanda. Þá vann Rögnvaldur Már Helgason úr Hjólreiðafélagi Akureyrar B-flokk karla. Rögnvaldur hjólaði brautina á 29:49,16 mínútum, eða einni mínútu og sex sekúndum betri tíma en næsti keppandi.

Júlía Björg Jóhannsdóttir úr HFA í tímatökukeppninni í gær. Hún vann U13 flokk kvenna. Móðir hennar, Silja Jóhannesdóttir, varð í 4. sæti í A-flokki (Elite). Mynd: Ármann Hinrik.

Aron Breki Haraldsson úr HFA í tímatökukeppninni í gær. Hann hjólar hér ásamt ömmu sinni, Þórdísi Rósu Sigurðardóttur. Aron Breki er sonur Hafdísar Sigurðardóttur, margfalds Íslandsmeistara í hjólreiðum, og Þórdís Rósa er móðir hennar. Þar sem ekki var keppt í lokaðri braut fylgdi Þórdís dóttursyninum í keppninni. Mynd: Ármann Hinrik.
Árangur keppenda frá Hjólreiðafélagi Akureyrar:
- A-flokkur kvenna (Elite)
1. Hafdís Sigurðardóttir
4. Silja Jóhannesdóttir - B-flokkur kvenna
4. sæti: Harpa Mjöll Hermannsdóttir - B-flokkur karla
1. sæti: Rögnvaldur Már Helgason
9. sæti: Ómar Örn Gunnarsson - Konur, U17
3. Regína Diljá Rögnvaldsdóttir - Konur, U13
1. sæti: Júlía Björg Jóhannsdóttir - Karlar, U11
1. sæti: Aron Breki Haraldsson
Sigurvegarar í einstökum flokkum:
- Konur
A-flokkur (Elite): Hafdís Sigurðardóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar
B-flokkur: Bjarkey Jónasdóttir, Ægi3
Junior, 17-18 ára: Friðrika Rún Þorsteinsdóttir, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
U17: Áslaug Yngvadóttir, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
U13: Júlía Björg Jóhannsdóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar - Karlar
A-flokkur (Elite): Davíð Jónsson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
B-flokkur: Jovan Kujundzic, Tindi
Junior, 17-18 ára: Sólon Kári Sölvason, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
U17: Þorvaldur Atli Björgvinsson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
U15: Nói Kristínarson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
U13: Matthías Árni Jónsson, Tindi
U11: Aron Breki Haraldsson, Hjólreiðafélagi Akureyrar
Allar upplýsingar um úrslit í keppninni má finna í í frétt á vef Hjólreiðasambandsins og á timataka.is.
Ármann Hinrik brá sér fram í sveit og sat fyrir hjólreiðafólkinu með myndavél og linsu að vopni.