Fara í efni
Pílukast

Þór/KA vann FH – nýliðinn með þrennu

Erin Flurey var fljót að láta til sín taka í sínum fyrsta leik fyrir Þór/KA í gær, skoraði strax á 5. mínútu og var komin með þrennu á 40 mínútum. Mynd: Ármann Hinrik.

Þór/KA vann FH í síðasta leik sínum í riðli 1 í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í gær. Lokatölur urðu 4-2. Nýr bandarískur leikmaður, Erin Flurey, skoraði þrennu í fyrri hálfleik. 

Það voru ekki liðnar nema fimm mínútur þegar Erin Flurey, bandarískur leikmaður sem samdi við Þór/KA í janúar, skoraði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Tíu mínútum síðar bætti hún við öðru marki. Eva Marín Sæþórsdóttir minnkaði muninn í 2-1 á 18. mínútu, en Erin kláraði þrennuna á 40. mínútu og Þór/KA með 3-1 forystu í leikhléinu. Mörkin hefðu getað orðið fleiri, nóg af færum og Þór/KA mun hættulegri í fyrri hálfleiknum. Margrét Árnadóttir skoraði reyndar mark eftir undirbúning frá Erin, en það fékk ekki að standa. 

Þór/KA tefldi einnig fram bandarískum markverði, Allie Augur, sem kom inn í stað Hörpu Jóhannsdóttur og spilaði seinni hálfleikinn. Báðar áttu þær góðan leik og fínar vörslur.

Allesandra Doherty Augur - eða Allie eins og hún er kölluð - spilaði seinni hálfleikinn í marki Þórs/KA í gær. Mynd: Ármann Hinrik.

Amalía Árnadóttir skoraði fjórða mark Þórs/KA snemma í seinni hálfleiknum og Þór/KA með góð tök á leiknum. FH minnkaði muninn aftur í tvö mörk. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir skoraði annað mark liðsins þegar rúmar 20 mínútur voru til leiksloka. Bæði lið fengu tækifæri til að bæta við mörkum, en ýmist fóru skotin framhjá eða þá að markverðir og varnarmenn komust fyrir þau. 

Þór/KA er í 2. sæti riðils 1 með níu stig þegar einum leik er ólokið í riðlinum, jafn mörg stig og Þróttur. Stjarnan er í efsta sætinu með tíu stig. Vonin um að fara áfram í undanúrslit er þó veik hjá Þór/KA því Þróttur á eftir að sækja FHL heim á Reyðarfjörð í lokaleik riðilsins og nægir Þrótturum jafntefli til að fara áfram. Tvö lið úr hvorum riðli fara í undanúrslitin. 

Leikskýrsla

Staðan í riðlinum