Fara í efni
Pílukast

Tap hjá SA Víkingum í framlengdum leik

Úr leik SA og SR í úrslitakeppninni vorið 2026. Uni Steinn Blöndal skoraði eitt marka SA í kvöld. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar máttu játa sig sigraða í framlengdum leik gegn liði Skautafélags Reykjavíkur í kvöld eftir að hafa í tvígang náð fjögurra marka forystu í öðrum leikhluta. Leikurinn var hin besta skemmtun, bæði lið spiluðu af krafti og færin voru fjölmörg, en Akureyringar náðu ekki að fylgja eftir góðri byrjun og gáfu eftir á lokamínútunum.

Góð byrjun Akureyringa

SA Víkingar héldu uppteknum hætti í fyrsta leikhlutanum í kvöld frá sigrinum glæsilega um síðastliðna helgi. Gunnar Arason gleymdist fyrir utan í sókn SA, fékk pökkinn frá Daniil Fursa og kom honum viðstöðulaust í markið. Fallegt mark hjá Gunnari sem kom undir miðjan fyrsta leikhluta. Annað markið var slysalegt fyrir heimamenn í Laugardalnum. Agnar Agnarsson átti þá skot fyrir utan, pökkurinn breytti um stefnu af kylfu heimamanns og Jóhann Björgvin í markinu náði ekki að bregðast við, pökkurinn lak í stöngina og inn. Akureyringar nýttu sér síðan að vera einum fleiri þegar leið á leikhlutann, spiluðu yfirvegað sín á milli fyrir utan vörn SR sem endaði með skoti frá Una Steini Blöndal sem söng í netinu. „Þessi leikur endar ekki 0-1,“ hafði Helgi Páll Þórisson, formaður ÍHÍ, sagt í upphafi lýsingar eftir fyrsta mark SA og varð fljótt sannspár.

Reykvíkingar komust í gang

Ormur Jónsson kom SA í 4-0 í öðrum leikhlutanum, í sókn sem hann hóf sjálfur og batt enda á hana eftir tvö atvik við rangstöðulínuna þar sem bæði lið vildu fá eitthvað fyrir sinn snúð, en fengu ekki. Það var ekki fyrr en undir miðjan annan leikhluta sem SR-ingar náðu loksins að svara eftir að Jakob Jóhannesson og varnarmenn SA höfðu haldið markinu hreinu allan síðasta leik og í einn og hálfan leikhluta í kvöld, samtals nær 90 mínútur. Það þurfti líka Akureyring til því það var Heiðar Örn Kristveigarson sem kom heimamönnum inn á skorblaðið. 

Jóhann Már Leifsson náði aftur fjögurra marka forystu fyrir SA þegar hann skoraði fimmta markið, en Alex Máni Sveinsson svaraði fyrir SR rúmri mínútu síðar, annar Akureyringurinn sem skoraði fyrir Reykjavíkurliðið. Bæði lið með tvö mörk í öðrum leikhlutanum og forysta SA þrjú mörk fyrir lokaþriðjunginn.

Æsispennandi lokakafli

Eduard Kascak minnkaði muninn í 3-5 með marki í þriðja leikhlutanum, állíka slysalegu og annað mark SA, en skot Eduards breytti um stefnu af skauta varnarmanns og tók Jakob úr jafnvægi í markinu. 

Lokamínúturnar urðu spennandi og kórónuðu skemmtilegan leik þó niðurstaðan hafi ekki orðið eins skemmtileg og í stefndi í upphafi leiks. SR-ingar tóku leikhlé þegar 77 sekúndur voru eftir af leiknum, tóku markvörðinn sinn út til að fjölga í sókninni og það bar árangur. Gunnlaugur Þorsteinsson minnkaði muninn í 4-5 þegar 27 sekúndur voru eftir og Eduard Kascak jafnaði í 5-5 þegar 15 sekúndur voru eftir af leiknum. Leiktíminn rann út og gripið til framlengingar til að skera úr um sigurinn og aukastigið, en í íshokkí fá bæði liðin eitt stig ef jafnt er eftir þrjá leikhluta og það lið sem skorar í framlengingu fær stig að auki.

Svo aftur sé vitnað í lýsandann Helga Pál þá sagði hann þegar staðan var 3-5 að liðið sem myndi skora næsta mark myndi vinna leikinn. Þar reyndist hann sannspár því það voru Reykvíkingar sem skoruðu í framlengingunni og hirtu aukastigið, eftir að SA Víkingar höfðu sótt af krafti í upphafi framlengingarinnar.

SR - SA (0-3, 2-2, 3-0, 1-0)

Helstu tölur úr leiknum:

SR

Mörk/stoðsendingar: Eduard Kascak 1/1, Heiðar Örn Kristveigarson 1/0, Alex Máni Sveinsson 1/0, Gunnlaugur Þorsteinsson 1/0, Kári Arnarsson, 1/0, Ævar Arngrímsson 0/3, Þorgils Eggertsson 0/2, Egill Þormóðsson 0/1, Hákon Marteinn Magnússon 0/1.
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 30 af 35 (85,71%).
Refsingar: 12 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 1/2, Uni Steinn Blöndal 1/1, Gunnar Arason 1/1, Agnar Agnarsson 1/0, Ormur Jónsson 1/0, Daniil Fursa 0/2, Unnar Hafberg Rúnarsson 0/1.
Varin skot: Jakob Jóhannesson 48 af 54 (88,89%).
Refsingar: 10 mínútur.

Leikskýrslan (atvikalýsing)

Staðan í Toppdeild karla

Næst:

  • Laugardagur 24. október
    Ofurhelgi 1, leikur 2
    Skautahöllin í Reykjavík kl. 16:45
    Fjölnir - SA