Rúnar Eff með tónleika heima í garðinum
Það verður líf og fjör á horni Mýrarvegar og Hrafnagilsstrætis á laugardaginn kl. 17 þegar Garðtónleikar Rúnars Eff fara fram í tilefni Akureyrarvöku. Þá verður sólpallinum heima hjá Rúnari í Hrafnagilsstræti 38 breytt í tónleikasvið og garðurinn fylltur af tónlist, pylsum og vonandi góðu veðri.
Á svið stíga Malen, Magni Ásgeirs og Rúnar Eff ásamt hljómsveit. Tónleikagestir þurfa ekki annað en að mæta með góða skapið – og mögulega pláss fyrir pylsu því boðið verður upp á grillaðar pylsur og drykki meðan birgðir endast. Og til að skapa enn meira rými fyrir gestina verður horni Mýrarvegar og Hrafnagilsstrætis lokað fyrir umferð meðan á tónleikunum stendur.

Þessi „ímyndaða“ mynd fylgir með kynningu á tónleikunum og sýnir hvernig umhverfið og stemmningin gæti orðið í garðinum hjá Rúnari Eff á horni Hrafnagilsstrætis og Mýrarvegar seinnipartinn á föstudag.
Eins og áður sagði þá hefjast tónleikarnir kl. 17 á laugardaginn og standa til 18:30. Allir eru hjartanlega velkomnir, aðgangur er ókeypis og það eru Höldur, Kjarnafæði, Coca-Cola og Akureyrarbær standa að veislunni með Rúnari.