Fara í efni
Pílukast

Færeysk myndlist í Mjólkurbúðinni

Guðrid Poulsen, Jón Sonni Jensen, Kristin Helgadóttir, Maibritt Marjunardóttir, Ole Wich og Rannvá Holm Mortensen frá Færeyjum opna sýningu í Mjólkurbúðinni þann 28. ágúst.

Myndlistarfélagið á Akureyri heldur áfram að efla tengsl við myndlistarfólk í Færeyjum og tekur nú á móti sex færeyskum listamönnum sem opna sýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyrarvöku. Sýningin ber heitið HRUN og byggir á óvenjulegri vinnuaðferð þar sem ekkert verk þarf endilega að halda sér í sömu mynd. Sýningin verður opnuð á morgun, föstudaginn 28. ágúst og stendur til 5. september.

Listafólkið sem tekur þátt er Guðrid Poulsen, Jón Sonni Jensen, Kristin Helgadóttir, Maibritt Marjunardóttir, Ole Wich og Rannvá Holm Mortensen. Þau starfa innan samtakanna Føroysk Myndlistafólk, sem eru systursamtök Myndlistarfélagsins á Akureyri.

Samstarf félaganna hófst á síðasta ári og fyrstu afurðir þess sáust þegar Myndlistarfélagið sýndi verk eftir sína félagsmenn í Gallerí Havnará í Þórshöfn í september 2025. Nú snýst dæmið við og Akureyringar fá tækifæri til að kynnast færeyskri samtímamyndlist.

Verkin eiga að geta hrunið

Sýningin HRUN byggir á svokallaðri dogma-aðferð þar sem listamennirnir setja sér sameiginlegar reglur og vinna innan ákveðins ramma. Í þessu tilviki er „hrun“ bæði hugmyndalegt þema og efnisleg takmörkun.

Sýningin Hrun/Kollaps.

Í fréttatilkynningu segir að verkin séu hönnuð þannig að hægt sé að fella þau saman, taka þau niður og setja þau upp á nýjan hátt. Þau eru því ekki hugsuð sem endanlegir og óbreytanlegir hlutir heldur er upplausnin sjálf hluti af sköpunarferlinu. Í stað þess að líta á hrun sem einhvers konar endalok vilja listamennirnir skoða það sem mögulegt upphaf að einhverju nýju. Áherslan er því ekki síður á vinnuferlið og möguleika efniviðarins en sjálft lokaútkomuna.

Hugmyndin sækir jafnframt í þá veröld sem listamennirnir telja að við búum í. Alþjóðleg stjórnkerfi veikjast, vistkerfi eru undir miklu álagi, innviðir verða brothættari og menningarleg sjálfsmynd tekur breytingum.

Hvað stendur eftir þegar það sem við töldum traust og varanlegt hrynur? Og hvað verður mögulegt þegar gömlu undirstöðurnar eru ekki lengur til staðar? Sýningin gefur ekki endilega einfalt svar við þeim spurningum, heldur býður gestum að velta þeim fyrir sér í gegnum verk sem sjálf geta hrunið – og síðan risið á ný.

„HRUN er sýning sem hægt er pakka saman, flytja og endurbyggja aftur og aftur – rétt eins og veröldin sem við lifum í,“ segir í fréttatilkynningunni frá Myndlistarfélaginu.