Fara í efni
Pílukast

Markaveisla og dramatík í fyrsta leik

Unnar Hafberg Rúnarsson og Axel Orongan kljást á svellinu í úrslitaeinvíginu fyrir tveimur árum. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Úrslitakeppnin í Toppdeild karla í íshokkí byrjaði með látum og dramatík í gærkvöld þegar Akureyringar sóttu Reykvíkinga heim í Skautahöllina í Laugardal. Lið Skautafélags Reykjavíkur náði að knýja fram 6-5 sigur með marki í framlengingu.

SA Víkingar náðu þriggja marka forskoti í fyrstu lotunni, fjögurra marka forskoti í upphafi þriðju lotu og héldu því þar til innan við tíu mínútur voru eftir. Þá seig á ógæfuhliðina og SR-ingar söxuðu á forskotið, skoruðu þrjú mörk á innan við fimm mínútum og jöfnuðu í 5-5 þegar 75 sekúndur lifðu leiks. Í framlenguninni misstu SA Víkingar mann í refsiboxið og einum fleiri náðu SR-ingar gullmarkinu sem tryggði þeim sigurinn og forystu í einvíginu.

Fjögurra marka forskot hvarf á tíu mínútum

Andri Már Mikaelsson náði forystunni fyrir SA eftir rúmlega fjórar mínútur. Undir lok fyrstu lotunnar bættu Jóhann Már Leifsson og Hank Nagel við tveimur mörkum og SA leiddi 3-0 að henni lokinni. Axel Orongan skoraði fyrsta mark SR og minnkaði muninn í tvö mörk þegar rúmar fimm mínútur voru liðnar af annarri lotunni, en Arnar Kristjánsson skoraði fjórða mark SA þegar rúm mínúta var eftir af lotunni. 

Akureyringar fóru því inn í þriðju lotuna með þriggja marka forskot, en létu það ekki nægja. Unnar Hafberg Rúnarsson skoraði fimmta markið í upphafi þriðju lotunnar, forskotið aftur orðið fjögur mörk. Tíminn leið og innan við tíu mínútur eftir, forskotið enn fjögur mörk, en þá komu þrjú mörk á innan við fimm mínútum frá SR. Tvívegis nýttu þeir sér yfirtölu eftir að leikmenn SA fengu refsingu, Eduard Kascak skoraði annað markið, Þorgils Eggertsson það þriðja og svo Níels Hafsteinsson það fjórða þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af leiknum. 

Undir lokin brugðu SR-ingar svo á það ráð að taka Jóhann Björgvin úr markinu og fjölga í sókninni. Það bar árangur þegar rúm mínúta var eftir, Sölvi Atlason jafnaði í 5-5. Hvorugu liðinu tókst að bæta við marki á lokamínútunni og því var gripið til framlengingar.

Axel Orongan með gullmarkið

Í framlengingu er fækkað í liðunum, þrír útileikmenn í stað fimm. Eftir tæplega mínútu leik í framlengingunni misstu SA Víkingar leikmann í refsiboxið og bættist því við fjórði leikmaður SR. Skömmu áður hafði Hank Nagel komist í ágætis færi til að klára leikinn fyrir SA, en þess í stað nýttu SR-ingar sér yfirtöluna til að skora gullmarkið. Axel Orongan hnýtti endahnútinn á viðsnúning SR-inga og tryggði þeim sigurinn eftir tæplega mínútu leik í framlengingunni. Sannarlega sárgrætilegur endir á annars skemmtilegu kvöldi og hörkuleik í upphafi einvígisins. 

Leikir þessara liða í vetur hafa ávallt verið spennandi og skemmtilegir, áhorfendur fá yfirleitt markaveislur og það var einnig uppi á teningnum í gær. Sex af 11 mörkum leiksins komu í yfirtölu, það er þegar hitt liðið missti mann í refsiboxið.

SR - SA 6-5 (0-3, 1-1, 4-1, 1-0)

Helstu tölur:

SR

Mörk/stoðsendingar: Axel Orongan 2/1, Níels Hafsteinsson 1/3, Eduard Kascak 1/1, Sölvi Atlason 1/1, Þorgils Eggertsson 1/0, Hákon Magnússon 0/2, Styrmir Maack 0/1, Heiðar Örn Kristveigarson 0/1, Ævar Arngrímsson 0/1.
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 14 af 16 (87,5%), Ævar Björnsson 9 af 12 (75%).
Refsingar: 12 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Andri Már Mikaelsson 1/2, Jóhann Már Leifsson 1/1, Hank Nagel 1/0, Unnar Hafberg Rúnarsson 1/0, Arnar Kristjánsson 1/0, Hafþór Andri Sigrúnarson 0/3, Ormur Jónsson 0/2
Varin skot: Jakob Jóhannesson 25 af 31 (80,6%).
Refsingar: 10 mínútur.

SR hefur því 1-0 forystu í einvíginu, en vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn. 

Leikskýrslan

Annar leikurinn í einvíginu verður í Skautahöllinni á Akureyri fimmtudagskvöldið 12. mars kl. 19:30.