Zlin Z-326 – glæsilegur gripur á Flugsafninu

SÖFNIN OKKAR – 79
Frá Flugsafni Íslands á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Safngripur vikunnar er valinn í tilefni af Flugdegi safnsins sem verður haldinn á laugardaginn.
Þar ræðir um TF-ABC, tékkneska Zlin Z-326 Trener-Master listflugvél sem skráð var á Íslandi 2. september 1966. Eigendur voru Félag íslenskra einkaflugmanna og Flugmálafélag Íslands. Vélin var keypt glæný frá verksmiðjunni í Tékkóslóvakíu og með hingað til lands komu flugvirki sem sá um samsetningu vélarinnar og flugmaður sem sá um að kenna íslenskum flugmönnum á vélina.
Á þeim tíma sem vélin var keypt hingað til lands var Zlin Z-326 Trener-Master talin ein fullkomnasta listflugvél sem völ var á og var ein sigursælasta flugvélategundin í alþjóðlegri listflugskeppni. Alls voru framleiddar 426 flugvélar af þessari gerð.
Helgi Rafnsson, einn eiganda Zlin Z-326 Trener-Master listflugvélarinnar TF-ABC, afhendir Steinunni Maríu Sveinsdóttur, safnstjóra Flugsafns Íslands, vélina til eignar og varðveislu á Flugdegi Flugsafns Íslands sumarið 2022. Mynd: Hörður Geirsson
Eftir 1975 var TF-ABC komin í einkaeign áhugamanna um listflug. Eigendahópurinn hefur breyst í gegnum árin, en síðustu eigendur vélarinnar voru Ásgeir Christiansen, Friðrik Ingi Friðriksson, Helgi Rafnsson, Magnús Norðdahl heitinn, og Magnús Steinarr Norðdahl. Vélinni var síðast flogið á flugdegi Flugsafns Íslands 18. júní 2022.
Vorið 2022 höfðu eigendur vélarinnar samband við Flugsafnið til að kanna áhuga safnsins á að varðveita flugvélina. Þeir höfðu hug á því að hætta að fljúga henni og vildu að hún yrði varðveitt á Flugsafninu þar sem hún fengi notið sín. Stjórn safnsins þáði höfðinglegt boð þeirra fimmmenninga. Í október sama ár var henni komið fyrir í safninu en allir sem að málinu komu voru sammála um að hengja ætti flugvélina upp í loft og hafa hana á hvolfi! Eftir góðan og þaulhugsaðan undirbúning Smára Árnasonar og Helga Rafnssonar var vélin hengt upp í loft með aðstoð góðra manna hjá Isavia og Erninum – Hollvinafélagi Flugsafnsins.
- Flugdagur Flugsafns Íslands verður sem áður segir haldinn nú á laugardaginn kl. 13-16 á Akureyrarflugvelli. Gengið er inn á svæðið um aðalinngang safnsins og aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir 13 ára og eldri. Flugsýningin hefst kl. 14 og eru allir hvattir til að koma og njóta dagsins og alls þess sem flug hefur upp á að bjóða – m.a. listflugs!
TB-ABC í kunnuglegri „stellingu“ – á Flugdeginum á Akureyri sumarið 2005. Mynd: Skapti Hallgrímsson