Fara í efni
Norðurorka

Síðasta Akureyrarliðið fallið úr bikarkeppninni

Þrír Akureyringar í gærkvöldi; frá vinstri, Jakobína Hjörvarsdóttir, Margrét Árnadóttir og Andrea Mist Pálsdóttir. Myndir: Ármann Hinrik

Árið 2026 verður ekki tími bikargleði Akureyringa í knattspyrnu. Síðasta meistaraflokkslið bæjarins, kvennalið Þórs/KA, féll úr leik í gærkvöld í 16-liða úrslitum.

Karlaliðin voru bæði dottin út áður; Þór tapaði fyrir FH á heimavelli strax í 1. umferð og KA tapaði fyrir B-deildarliði Ægis á heimavelli á fimmtudaginn í 16-liða úrslitum. Í gær urðu stelpurnar svo að játa sig sigraðar þegar Stjarnan kom í heimsókn. Gestirnir unnu 4:1 á VÍS velli Þórs, gervigrasvellinum á Ásnum.

Þegar byrjunarlið Þórs/KA var tilkynnt í gær kom í ljós að Arna Sif Ásgrímsdóttir var ekki á blaði; hún er mikilvægasti leikmaður liðsins en gengur ekki heil til skógar. Arna leikur í hjarta varnarinnar, hinn miðvörður liðsins, Hulda Björg Hannesdóttir meiddist illa um daginn og verður að líkindum ekki meira með í sumar, og þá var framherjinn Erin Fleury heldur ekki í hópnum í gær. Hún byrjaði tímabilið vel en hefur er  verið fjarri góðu gamni um tíma vegna meiðsla. Skörð þessara þriggja eru vandfyllt.

Mark Þórs/KA í gær; Bríet Fjóla Bjarnadóttir sendir fyrir markið og Birgitta Rún Finnbogadóttir skorar.

Fimm breytingar voru á byrjunarliði Þórs/KA frá deildarleiknum í Eyjum í vikunni. Harpa Jóhannsdóttir var í markinu og Angela Mary Helgadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Bríet Fjóla Bjarnadóttir voru með frá byrjun í stað Allesandra Augur, Elísu Bríetar Björnsdóttur, Maríu Daggar Jóhannesdóttur og Huldu Óskar Jónsdóttur.

Þór/KA kom ákveðið til leiks, leikmenn virtust fullir sjálfstrausts en svo dundi ógæfan yfir þegar aðeins tæpar 10 mínútur voru búnar. Boltinn var sendur inn á markteig utan af hægri kanti, Snædís María Jörundsdóttir var óvölduð á milli miðvarðanna tveggja og skoraði af stuttu færi.

Fyrri hálfleikur var mjög rólegur allt þar til á síðustu augnablikunum að Þór/KA jafnaði eftir mjög góða sókn. Löng sending Karenar Maríu út á vinstri rataði til Bríetar Fjólu Bjarnadóttur sem lék inn á vítateig og sendi fyrir markið þar sem Birgitta Rún Finnbogadóttir var mætt og skoraði af harðfylgi – eins og sjá má á myndum Ármanns Hinriks hér að ofan.

Mjög vel var að marki Þórs/KA staðið, heimaliðið gekk glaðbeitt til búningsherbergis og stuðningsmönnum stelpnanna okkar hlýnaði um hjartarætur. Stemningin var í þessum anda fyrsta stundarfjórðung seinni hálfleiks, Þór/KA sótti af nokkrum krafti og komst næst því að skora þegar tæpar 15 mín. voru liðnar. Birgitta Rún og Bríet Fjóla höfðu þá hlutverkaskipti, sú fyrrnefnda komst framhjá varnarmönnum á hægri kantinum og sendi boltann á Bríeti Fjólu sem var í dauðafæri í miðjum vítateignum en Bridgette Nicole Skiba markvörður Stjörnunnar varði mjög vel.

Skjótt skipuðust svo veður í lofti því aðeins fjórum mín. síðar hafði Snædís María komið Stjörnunni yfir á ný. Gestirnir galopnuðu vörn Þórs/KA, Snædís komst óáreitt inn á vítateig og skoraði örugglega. Markið var sem blaut tuska í andlit leikmanna heimaliðsins og annað áfall reið yfir aðeins þremur mín. eftir þetta þegar Telma Steindórsdóttir skallaði boltann í mark Þórs/KA eftir aukaspyrnu annars tveggja Akureyringanna í liði Stjörnunnar, Andreu Mistar Pálsdóttir. Þar var vörn heimaliðsins enn einu sinni illa á verði. Rothöggið kom svo í uppbótartíma þegar Stjarnan fékk aukaspyrnu út við hliðarlínu vinstra megin og Andrea Mist skoraði með föstu skoti; boltinn sveif yfir Hörpu markvörð og í netið.

Sigur Stjörnunnar var sanngjarn en þriggja marka sigur þó of stór miðað við gang leiksins. Það skiptir hins vegar aldrei máli þegar upp er staðið; þá eru mörkin talin og vangaveltur um sanngirni, „exgjé“ og sitthvað fleira aðeins einskonar samkvæmisleikur.

Leikskýrslan á vef KSÍ