Fara í efni
Norðurorka

Dúkristur Guðmundar Ármanns úr Innbænum

SÖFNIN OKKAR – 126

Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Guðmundur Ármann
Spítalavegur – Lækjargata
1979
Grafík, háþrykk, dúkrista
Stærð: 21.7 x 26.7 x 0 cm, með ramma 30 x 40 x 0 cm

Guðmundur Ármann er fæddur í Reykjavík og á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu. Hann hefur haldið 52 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Guðmundur lauk prentsmíðanámi 1962, útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1966 og nam við Valand-listaháskólann í Gautaborg frá 1966-1972.

Guðmundur var einn af þeim listamönnum sem var í fararbroddi við endurvakningu grafíklistarinnar árið 1969 sem markaði upphafið að blómaskeiði íslenskrar grafíklistar og öðlaðist þar með varanlegan sess í íslenskri myndlist. Hann flutti til Akureyrar 1972 til að starfa sem myndlistarkennari, kláraði kennararéttindanám við Háskólann á Akureyri 2002 og lauk MEd-prófi í menntunarfræðum frá sama skóla 2013.

Listasafnið á Akureyri hefur sýnt verk Guðmundar Ármanns bæði á einka- og samsýningum. Í nýðliðnu vori stóð yfir í safninu yfirlitssýningin Aðflæði, sem dró fram meginþræði í listsköpun hans á löngum ferli. Þess má geta að Guðmundur vakti fyrst athygli bæjarbúa með dúkristum sínum af húsunum í innbænum.

Verkið Spítalavegur – Lækjargata er dúkrista og sýnir þekkt kennileiti í innbænum, horn Spítalavegar og Lækjargötu.

Aðspurður um umrædda mynd svarar listamaðurinn sjálfur:

Það var sumarið 1978 sem ég gerði blýhantsteikningar af húsunum í Innbænum. Ég gekk um hverfið, þar sem við bjuggum um þetta leyti með teikniblokk og fangaði nokkur myndefni. Það var síðan 1979 sem ég valdi nokkrar teikningar og gerði af þeim dúkristur, en myndirnar voru skornar út í línoleum dúk og þrykktar í tölusettum eintökum. Valdi ég síðan 10, dúkristur og þrykkti hverja mynd í 100 eintökum og gaf út möppuna, „Innbærinn“ með samtals tíu myndum. Sömuleiðis voru möppurnar tölusettar. Þessi mynd sýnir húsin á horni Spítalavegs og Lækjargötu. Litla húsið til vinstri ofan við húsið á horninu gekk undir nafninu Litla smiðjan.“ – Guðmundur Ármann, júní 2026.