Barist um titla í blaki – fótboltinn á fullu
Spennan eykst í úrslitaeinvígjum KA-liðanna í blakinu. Konurnar eru komnar í þá stöðu að verða að vinna HK í næsta leik og þarnæsta og þarnæsta til að verja Íslandsmeistaratitilinn, en staðan hjá körlunum er jöfn eftir tvo leiki gegn Þrótti. Keppni í Bestu deild karla í knattspyrnu er komin á fulla ferð og keppni í Bestu deild kvenna hefst um komandi helgi.
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL - blak
Kvennalið KA í blaki er komið í erfiða stöðu eftir ótrúlegan viðsnúning og tap í annarri viðureign liðsins við HK í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í blaki. HK vann fyrstu viðureignina á sínum heimavelli, 3-1, eftir hnífjafnar og spennandi hrinur. Í öðrum leiknum vann KA fyrstu tvær hrinurnar, en HK sneri taflinu við og vann 3-2. KA er þar með lent 0-2 undir í einvíginu og verður því að vinna á miðvikudag til að halda einvíginu gangandi.
- Íslandsmótið, Unbroken-deild kvenna í blaki
Úrslitaeinvígi, leikur 3
Digranes í Kópavogi kl. 18
HK - KA - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.
- - -
KA er án stiga eftir fyrstu tvær umferðir Bestu deildar karla í knattspyrnu, tvö töp í tveimur heimaleikjum gegn Stjörnunni og Víkingi. Á miðvikudag er komið að fyrsta útileik liðsins, heimsókn á Akranes þar sem KA mætir ÍA. Skagamenn hafa náð sér í eitt stig í fyrstu tveimur leikjunum, gerðu jafntefli við Fram í fyrstu umferðinni, en töpuðu síðan naumlega fyrir Breiðabliki.
Tilkynnt var um það í byrjun vikunnar að grasvöllurinn á Akranesi væri ekki tilbúinn og hefur því verið gripið til þess ráðs að fara með leikinn inn í Akraneshöllilna.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Akraneshöllin kl. 18
ÍA - KA
ÍA vann heimaleik sinn gegn KA í deildinni í maí í fyrra, 3-0, en KA svaraði með 2-0 sigri á sínum heimavelli í júlí og aftur í neðri hluta deildarinnar í október, 5-1.
- - -
Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða settir á miðvikudag og keppt verður í Hlíðarfjalli fimmtudag, föstudag og laugardag. Þetta eru 50 ára afmælisleikar; þeir fyrstu voru haldnir fyrir 50 árum, 1976.
Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri síðasta vetrardag, miðvikudagskvöldið 22. apríl, að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda frá Lundarskóla/Íþróttasvæði KA kl. 19:00.
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL - blak
Eftir 3-0 sigur gegn Þrótti í fyrsta leik úrslitaeinvígisins um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla tapaði KA annarri viðureigninni í oddahrinu eftir að hafa lent 0-2 undir og náð að jafna í 2-2. Liðin eru því hnífjöfn eftir tvær viðureignir og sú þriðja verður í KA-heimilinu á fimmtudag.
- Unbroken-deild karla í blaki
Úrslitaeinvígi, leikur 3
KA-heimilið kl. 17
KA - Þróttur R. - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Vinna þarf þrjá leiki til að hampa Íslandsmeistaratitlinum og því ljóst að úrslitaeinvígið fer að minnsta kosti í fjóra leiki, en ekki ólíklegt að það muni enda í oddaleik á Akureyri.
- - -
Eftir nokkuð óvæntan sigur Þórs á Val að Hlíðarenda í fyrstu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu kom 5-2 tap fyrir KR í 2. umferð mótsins. Þór er því með þrjú stig úr fyrstu tveimur umferðunum og á fimmtudag er komið að fyrsta heimaleik liðsins í efstu deild frá því haustið 2014, nánar tiltekið 28. september 2014 þegar Þór vann Breiðablik 2-0.
Unnið hefur verið hörðum höndum að því að klára frágang margvíslegra atriða í umgjörð nýja gervigrasvallarins á Þórssvæðinu því þó völlurinn sjálfur sem slíkur sé tilbúinn eru ýmis atriði ókláruð áður en keppnisleyfi fæst. Þegar þetta er ritað er leikurinn skráður á Þórsvöll og ekki annað vitað en að leikurinn muni geta farið fram á Þórsvellinum, Ásnum. Þórsarar munu því væntanlega fagna sumri með formlegum vígsluleik félagsins á nýju gervigrasi.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Þórsvöllur, Ásinn, kl. 17
Þór - Fram
LAUGARDAGUR 25. APRÍL - fótbolti
Keppni í Bestu deild kvenna í knattspyrnu hefst með tveimur leikjum föstudaginn 24. apríl, þegar Breiðablik tekur á móti Jóhanni Kristni Gunnarssyni og Þróttarliðinu, og Víkingur tekur á móti Stjörnunni. Þór/KA hefur leik á laugardag, vonandi á nýjum Þórsvelli, Ásnum, þar sem unnið er hörðum höndum þessa dagana við alls konar frágang.
Þór/KA tekur á móti FH í fyrstu umferðinni, en FH endaði mótið í 2. sæti í fyrra og er því annað af liðum Bestu deildar kvenna sem tekur þátt í Evrópukeppni í sumar.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu
Þórsvöllur, Ásinn, kl. 16
Þór/KA - FH
Þór/KA og FH mættust í Boganum fyrir stuttu, í lokaleik liðanna í riðlakeppni Lengjubikarsins. Þór/KA hafði þar sigur, 4-2. FH vann báðar viðureignir liðanna í deildinni í fyrrasumar, 3-0 í Boganum og 5-3 í Kaplakrika, auk þess að slá Þór/KA út úr bikarkeppninni með 3-1 sigri í Boganum.
SUNNUDAGUR 26. APRÍL - fótbolti
Leikjadagskráin í Bestu deild karla í knattspyrnu er þétt þessar fyrstu vikur mótsins og strax á sunnudag leikur KA fjórða leik sinn í mótinu þegar liðið tekur á móti Keflvíkingum.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Greifavöllurinn á Akureyri kl. 18
KA - Keflavík
Keflvíkingar enduðu í 5. sæti Lengjudeildarinnar í haust, en unnu umspilið um laust sæti í Bestu deildinni.