Fara í efni
Norðurorka

Áfram eitt stöðugildi heilbrigðisnefndar 2027

Mynd: Þorgeir Baldursson.

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) í september samþykktu sveitarfélögin að starfsemi Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra yrði haldið áfram á árinu 2027 með að lágmarki einu stöðugildi, þrátt fyrir að megnið af núverandi eftirlitsverkefnum flytjist frá sveitarfélögunum til ríkisins um áramótin. 

Fjárhagsáætlun var lögð fyrir heilbrigðisnefndina í lok október, þar sem gert er ráð fyrir kostnaði vegna eins stöðugildis og húsnæðis , ásamt öðrum almennum rekstrarkostnaði. Jafnframt er gert ráð fyrir ákveðnum kostnaði vegna frágangs og skila gagna og ráðgjafar í tengslum við yfirfærslu verkefna til ríkisins. 

Akureyrarbær með ríflega tvo þriðju hluta

Miðað er við að kostnaður við starfsemina skiptist á milli aðildarsveitarfélaganna á sama hátt og verið hefur hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, það er út frá íbúafjölda. Akureyrarbær greiðir þannig 67,55% af kostnaði miðað við áætlun fyrir næsta ár, eða ríflega 27 milljónir króna.

Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra fyrir yfirstandandi ár gerði ráð fyrir tæplega 116 milljóna króna kostnaði, en ný áætlun fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 40 milljónum króna. Dagvinnulaun eru áætluð 14,1 milljón og yfirvinnulaun rúmar 5,7 milljónir að auki, og með launatengdum gjöldum samtals rúmar 33 milljónir króna. Þá eru nefndarlaun áætluð 2,5 milljónir króna.

Starfshópur um framtíðarfyrirkomulag verkefna

Stjórn SSNE hefur jafnframt skipað starfshóp um Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra með það hlutverk að undirbúa rökstudda tillögu til stjórnar SSNE um framtíðarfyrirkomulag þeirra verkefna sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaganna eftir breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem taka gildi um áramótin.

Í starfshópnum eru Þórhallur Harðarson, formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, Katla Eiríksdóttir, forstöðumaður umhverfis- og úrgangsmála hjá Akureyrarbæ, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE, og Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar. Þá mun Leifur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra vinna með starfshópnum og sitja fundi hans.