Fara í efni
Minjasafnið á Akureyri

Einhyrningur Kjuregej Alexandra Argunova

SÖFNIN OKKAR – 140

Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Kjuregej Alexandra Argunova
Blátt verk, einhyrningur
Blönduð tækni

Kjuregej Alexandra Argunova er fjölhæf listakona frá Jakútíu í Síberíu. Hún hefur búið og starfað á Íslandi um áratugaskeið, fengist við ólík myndlistarform og þróað með sér sinn einstaka stíl.

Verk Kjuregej eru flest hlutbundin og einkennast af einlægni, kjarki og framandi menningararfi. Myndefni sækir hún víða að, en íslensk náttúra er gjarnan helsti innblásturinn. Í verkum hennar mætast þannig ólíkar rætur og reynsla – minningar frá Jakútíu, íslenskt landslag og persónuleg sýn listakonunnar á heiminn.

Meðal verka Kjuregej í safneign Listasafnsins á Akureyri er mynd af einhyrningi, unnin með blandaðri tækni. Einhyrningurinn er kunnugleg vera úr ævintýrum og goðsögnum, en hann getur jafnframt vakið upp ólíkar hugrenningar eftir því hver horfir. Hvað sjáum við í forminu, litunum og svipmótinu? Er einhyrningurinn tákn fyrir drauma, frelsi og ímyndunarafl eða eitthvað allt annað?


Verkið er nú til sýnis á sýningunni Hughrif - litir - form II, á meðal fleri verka úr safneign Listasafnsins á Akureyri. Þar er sjónum beint að því hvernig litir og form geta mótað upplifun okkar af listaverkum. Form geta verið lífræn eða geometrísk, tvívíð eða þrívíð, en litir geta skapað stemningu, vakið tilfinningar og jafnvel haft táknræna merkingu. Sú merking er þó ekki alltaf sú sama fyrir alla - hún mótast meðal annars af bakgrunni okkar, menningu og því samhengi sem verkið birtist í.

Einhyrningur Kjuregej er því áhugavert dæmi um hvernig eitt form getur opnað á ólíkar hugmyndir og túlkanir. Kannski er einmitt það sem gerir myndlist svo heillandi: við horfum öll á sama verkið, en sjáum ekki endilega það sama.

Á sýningunni Hughrif – litir – form II gefst gestum tækifæri til að skoða fjölbreytt verk úr safneigninni og velta fyrir sér eigin hughrifum af litum, formum, efnum og aðferðum. Gestir geta einnig tekið virkan þátt í sýningunni með því að skapa eigin verk innblásin af verkunum sem þar má sjá.

Sýningin Hughrif – litir – form II stendur yfir í Listasafninu á Akureyri til 7. mars 2027. Sýningarstjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.