Fara í efni
Millilandaflug frá Akureyri

Sautján ár á milli sigra að Hlíðarenda

Margrét Brynja Kristinsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í leik Þórs/KA og Vals á Akureyri fyrr í sumar. Mynd: Ármann Hinrik.

Sigur Þórs/KA á Val í 19. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu, fyrstu umferð neðri hlutans, síðastliðinn laugardag var sögulegur. Þetta er aðeins í annað skipti sem Þór/KA vinnur Val að Hlíðarenda í efstu deild Íslandsmótsins, en þó þriðji útisigurinn því liðin mættust á Laugardalsvelli sumarið 2016.

Í fróðleiksmolapistli á vef Þórs/KA kemur fram að fyrsti sigur Þórs/KA á Val í efstu deild að Hlíðarenda hafi litið dagsins ljós 7. ágúst 2009, undir stjórn Dragans Stojanovic og Siguróla Kristjánssonar, Mola. Þór/KA vann þann leik 2-1 og skoraði Mateja Zver bæði mörkin. Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði þann leik og spilaði allan leikinn í 1-0 sigri Þórs/KA á Val á laugardaginn. Rúm 17 ár, eða 6.253 dagar, eru á milli þessara leikja.

Sumarið 2009 – Arna Sif Ásgrímsdóttir, til vinstri, og Rakel Hinriksdóttir. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Í millitíðinni vann Þór/KA reyndar útisigur gegn Val í efstu deild, en sá leikur fór fram á Laugardalsvellinum 1. september 2016 og endaði með 4-0 sigri Þórs/KA þar sem Klara Lindberg skoraði þrennu og Sandra María Jessen eitt mark. Valur spilaði heimaleiki sína það sumar á Laugardalsvellinum þar sem núverandi gervigrasvöllur félagsins var þá í byggingu.

Til gamans má geta þess að Rakel Hinriksdóttir, einnig þekkt fyrir áhugaverð viðtöl og greinar á akureyri.net, spilaði allan leikinn í sigrinum 2009.

Leikskýrslurnar:

Nánar er fjallað um þessa leiki og fleiri í áðurnefndum pistli á vef Þórs/KA.